
Ég vildi alltaf fyrir alla muni sofa úti, alveg sama þó það væri 8 vindstig og 12 gráðu frost. Hér er ég að lúlla í hausinn minn áður en ég fór í stóru aðgerðina mína á Landsspítalanum. Það var svo vont veður að það sást ekki á milli húsa á Selfossi, þennan daginn. Og ég ný orðin eins árs.

Hér
er ég svo í fullri sveiflu á Lansanum, 2 dögum
eftir 5 tíma aðgerð. Pokar, slöngur, nálar og
nefnið það bara, það hékk allt utan á
mér og inní mér líka.Nei maður kallar nú
ekki allt ömmu sína það get ég sagtykkur.
Vonandi eiga sem flestir eftir að eiga jafn góða daga og
ég átti á Landsspítalanum, en víst er
það að ekki var þetta alltaf auðvelt. Oft fann
ég til og enn á ég það til að verða
ósköp lasin en maður verður bara að halda sínu
striki.


saumaði búninginn með hjálp Gústu frænku.
Aftur
til heimasíðunnar hennar mömmu
