Silverstone

Það fór eins og ég spáði, eitt og annað gerðist á Silverstone.  Keppnin sjálf var ágæt, en hennar verður líklega frekar minnst vegna aðstæðna keppenda og áhorfenda sem margir hverjir voru nærri drukknaðir við þá iðju að komast til Silverston.  Umferðaröngþveitið vegna rigningarinnar var þvílíkt að vísa varð fólki frá og Mika komst ekki inn á keppnissvæðið öðruvísi en að húkka sér far með mótorhjóli inn á svæðið.Mér hefði þótt gaman að sjá svipinn á þeim manni er Mika bankaði í öxlina á.

 

McLaren bílarnir náðu ekki góðum árangri í tímatökunni og bæði Frentzen og Rubens voru fyrir framan þá.  Aðstæður voru þannig að í upphafi tímatökunnar rigndi en brautin þornaði er á leið og við lá að mætti segja að hver sá sem ætti síðasta tímann, myndi ná fyrsta rásmarkinu.  Svo mikið bötnuðu skilyrðin.  En umferðin var gífurleg og olli töfum fyrir ýmsa m.a. Schumacher sem einungis náði 5. sæti.

Minardi er það lið sem státar af besta liðsandanum í F1

 

Startið var nokkuð óvenjulegt.  Fyrst of fremst vegna þess að maður sér ekki oft Frentzen og Rubens fyrir framan McLaren bílana eða Schumacher.  Og hins vegar vegna þess hve McLaren bílarnir voru óhemju seinir.  

Schumi reyndi að komast framar í startinu með því að fara út í grasið en reið nú ekki feitum hesti frá því stússi.  Hann átti í verulegu basli alla keppnina og verður að teljast nokkuð heppinn að ná þriðja sætinu.  En hann náði því vegna þess að liðin fyrir framan hann voru á tveimur stoppum en hann bara á einu.  Button fór fram úr honum og er alsendis óvíst hvort drengurinn sá sé kominn niður úr skýjunum vegna þess.  Fræg varð einnig viðureign bræðranna, Ralf fór fram úr stóra bróður á glæstan hátt.

 

Rubens naut ekki þeirrar gæfu að ljúka keppni.

 Röð fremstu manna var DC, Mika, Schumi, Ralf, Button og Trulli.  Frentzen varð að hætta keppni en var annars öruggur í 4. sæti.

Málið hefði verið McLaren auðveldara ef Mika hefði unnið en ekki DC því þá hefði munurinn minnkað um 6 stig í stað tveggja milli hans og Schumacher.  

McLaren fékk hér sinn fyrsta 1 - 2 sigur og enn um sinn verður um keppni á milli liðanna að ræða.  Ferrari hefur ekki landað titlunum enn.

 

 

Til baka á heimsíðuna mína

Gert 4. júlí 2000