Magny Cours
Í upphafi helgar var það alveg ljóst að til þess að McLaren ætti að eiga raunhæfa möguleika á öðrum hvorum titlinum nú eða báðum, urðu hlutirnir að ganga upp en útlitið var ekkert sérstaklega bjart. Tóm vandræði höfðu verið með bíl Davids á æfingum og hann var í ólagi megnið af tímatökunni en þó náðist að koma honum á götuna og DC gat nælt sér í 2. sætið á eftir Schumacher, þriðji var Rubens og enn var Mika ekki nema skugginn af sjálfum sér í 4. sæti.

Skugglegur Mika - eða skugginn af Mika?
Það sem ég á eftir að muna alla tíð er að RÚV fékk þá flugu í höfuðið að hægt væri að senda út formúlu 1 kappakstur klipptan og verulega styttan. Þvílík synd og skömm. Ofan á þennan vafasama heiður varð Frakklandskappaksturinn einn af eftirminnilegri viðburðum tímabilsins.
Úrslit keppna fram að þessu hafa gjarnan verið útskýrð á ýmsan hátt, það hefur rignt, bílar hafa bilað o.s.fv. en nú er ekki um neitt slíkt að ræða. Hrein og klár barátta á milli efstu liðanna þar sem McLaren hafði betur. David sýnid enn á ný frábæran akstur og var grimmari en nokkru sinni. Um það leyti sem Mika fór fram úr Schumi bilaði bíll þess síðarnefnda. Rubens varð að láta sér lynda 3. sætið, þrátt fyrir að í frábæru samspili þeirra Ferrari félaga í startinu náðu Rubens 2. sætinu.

Lánleysi Jagúars er algert - Irvine í 13. sæti og Herbert datt úr leik.
Herbert hefur ákveðið að hætta í F1 eftir þetta tímabil.
McLaren bar Ferrari ofurliði og þó Rubens héldi að hann gæti haldið köppunum fyrir aftan sig varð sú ekki raunin. Hann lenti í 3. sæti og gat ósköp fátt við því gert. Viðureign Schumacher og Davids verður lengi í minnum höfð. Upp úr sauð já David og hann sendi honum puttann þegar hann reyndi að fara fram úr Schumi í fyrra skiptið.

Honum tókst þó ætlunarverk sitt og var þar með kominn með pálmann í hendurnar. Schumacher datt hins vegar úr leik í þann mund er Mika tók fram úr honum á u.þ.b. fimmtugasta hring

DC að fara fram úr Schumi - fer að verða endurtekið efni :-)
Þetta var frábær keppni, sérstaklega ef maður er McLaren maður, en engu að síður trúi ég að fólk hafi skemmt sér hið besta, hverrar trúar sem það er.
Skandallinn er hins vegar sá að þessi keppni var ekki sýnd í heilu lagi, ekki einu sinni í endursýningu. Mér finnst það skítt og í raun jaðrar við að mér finnist það viðhorf bera vitni um það F1 sé það sem margur segir hana vera - bílar að keyra hring eftir hring og allt í lagi sé að klippa út svona 30 hringi, það gerist hvort sem er ekki neitt.
En nú er að bíða eftir Austurísku keppninni. Við taka hraðar brautir sem sagðar eru henta McLaren vel, munu þeir geta nýtt sér það?

Gert 9. júlí 2000
Myndir flestar teknar á formula1.com