Cynthia og Engelberta eru sex og átta ára gamlar og búa ásamt móður sinni. í Walvis Bay. Þær ganga í skóla sem heitir Immanuel Ruiters J.P.S. Í skólanum eru 1080 börn á aldrinum 6 til 10 ára. Skólastjórinn er kona og kennarar eru 29, þar af 3 karlmenn. Kennslustofur eru 27 í skólanum og um 40 nemendur í hverjum bekk.

Cynthia er í 1 bekk og lærir ensku og afríkaans. Einnig lærir hún stærðfræði, umhverfisfræði, trúarbragðafræði, leikfimi og listir. Systurnar vakna klukkan sex á morgnana og fara af stað að heiman klukkan hálf sjö gangandi í skólann. Cynthia er í skólanum til rúmlega tólf en Engilberta 40 mínútum lengur. Í skólanum er eitt matarhlé og nemendur koma með nesti að heiman.

Mæðgurnar bjuggu áður í höfuðborginni Windhoek. Þegar þær fluttu til Walvis Bay var skólaárið hálfnað en Engilberta fékk ekki að klára skólaárið í Walvis Bay og varð að bíða þar til nýtt skólaár hófst og byrja þá á sama stað og árið áður.
(© JÁÞ)


© JÁÞ

Forsíða --Efst á síðu --- Verkefnaskil
Nemendasíða --- Umræður

 

© JÁÞ
© JÁÞ maí 2001