Sanþjóðflokkurinn


© JÁÞ

Enginn þjóðflokkur hefur búið lengur á því svæði sem nú er Namibía en Sanþjóðflokkurinn. Í þúsundir ára hefur Sanfólkið, sem nýlenduherrarnir kölluðu Búskmenn, flakkað um Kalahari á svæði sem nær frá austurhluta Namibíu og vesturhluta Botswana.

Þjóðflokkurinn komst af í þessu hrjóstuga umhverfi með því að aðlaga sig staðháttum. Sanfólkið setti upp híbýli sín þar sem vatn var að finna. Ef uppsprettan þornaði upp þurfti að flytja sig um set og leita að nýju vatnsbóli. Fólkið lifði aðallega af söfnun og veiðimennsku. Konurnar söfnuðu rótum, berjum, ávöxtum og hnetum til matar, en hlutverk karlanna var að veiða. Konur veiddu þó einnig stundum smærri dýr.

Samkvæmt hefðum Sanfólksins er enginn formlegur höfðingi við völd heldur stjórnar fólkið í sameiningu, bæði konur og karlar. Deilur eru leystar með ítarlegum og löngum viðræðum, þar sem allir eiga að fá að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Átök og ófriður eru því nær óþekkt meðal Sanfóksins.

Fyrir um 2.000 árum fóru aðrir þjóðflokkar að flytjast til þess svæðis sem nú er Namibía. Þar á meðal voru hirðingjar og síðar komu þjóðflokkar sem stunduðu akuryrkju. Öldum saman lifðu þessir þjóðflokkar hlið við hlið en hver með sína siði. Löng viðkynni af þorpslífinu, þar sem fólk ræktar garða, elur búfénað og á sér fastan bústað, hefur þó haft áhrif á Sanfólkið og breytt lífsvenjum þeirra. Þurrkar og áhrif ofnýtingar beitarlands á gróður og villt dýralíf hefur einnig haft sitt að segja. Þó örfáir viðhaldi enn venjum þjóðflokksins hafa flestir þeirra tekið upp breytta lífshætti nú orðið.

Meðal þess sem hverfur með nýjum lífsstíl er tungumálið. Tungumál Sanfólksins er í útrýmingarhættu og með því hverfur þekking og reynsla ótal kynslóða sem geymst hefur í frásögnum og munnmælasögum tungunnar. Sanfólkið þykir til dæmis hafa til að bera yfirgripsmikla þekkingu á veðurfari, hegðun dýra og hvernig nýta má jurtir til matar og lyfjagerðar. Hætt er við að þessi þekking gleymist með tungumálinu og breyttum lífsháttum.
(©ÞSSÍ)

 

Forsíða --- Efst á síðu --- Verkefnaskil --- Nemendasíða --- Umræður

© JÁÞ maí 2001