Öldurót í Swakopmund
© JÁÞ
Hin 300-400 km strandlengja norðan Walvis Bay er án efa eyðilegasta strönd allrar Afriku. Hún kallast Skeleton Coast eða Helgrindarströnd og dregur nafn sitt af þeim fjölda mannabeina, hvalbeina og skipsflaka sem varðað hafa fjöruna öldum saman. Hinn kaldi Benguela hafstraumur sem kemur frá Suðurskautslandinu og liggur upp að ströndinni drekkur i sig allan raka frá landi og lofti og myndar 40-50 km breiða eyðimörk meðfram fjörunni. Oftast liggur þoka yfir sjónum næst ströndinni og miklir stormar róta þar upp gríðarháum öldum. Erfitt er án góðra siglingatækja að greina a milli sandfjörunnar og grynninga sem víða ná langt út. Áður fyrr voru skipskaðar tíðir við þessa strönd. Fyrir skipbrotsmenn sem komust á land tók ekki betra við. Vatnsleysi og steikjandi sólarhiti á daginn og kuldi á nóttunni gerði fljótt út af við þá.

Margar ógnvekjandi munnmælasögur lifa meðal þjóðflokkanna sem byggja landið fyrirofan eyðimörkina um örlög skipbrotsmanna. Ein gömul saga segir frá Hererohöfðingja sem hraktist niður að strönd ásamt liðsmönnum sínum út af erjum við nágranna. Þar rákust þeir á tvær undarlega útlítandi verur og voru framan af ekki vissir um hvort þetta væru dýr eða menn. Það var ekki fyrr en þeir sáu að verunar gengu á tveimur fótum að þeir fullvissuðu sig um að þarna væru menn á ferð. Í nágrenninu var strandað skip og skipbrotsmennirnir tveir nær dauða en lifi af þorsta og hungri. Annar mannanna lést fljótlega en hinum gáfu Hereromennirnir einn uxa og skildu hann síðan eftir til að mæta örlögum sínum.

Fram á síðari ár var nánast útilokað að nokkur kæmist af eftir strand við Helgrindarströnd og enn stendur sjófarendum mikil ógn af henni.
(© ÞSSÍ)

© JÁÞ maí 2001
Forsíða --- Efst á síðu --- Verkefnaskil --- Nemendasíða --- Umræður