Jafnréttismál
|
|
||||||||||
| © JÁÞ | ||||||||||
| Konur eiga undir högg að sækja
í Namibíu eins og víðar. Áður hindruðu
lög að þær gætu tekið þátt í
efnahagslífi á jafnréttisgrundvelli. Þær
skorti lagalegan rétt á við karlmenn til að komast
yfir eignir, höfðu lítinn aðgang að fjármagni
og voru hindraðar í þátttöku í ákveðnum
atvinnugreinum. Margvíslegar hömlur voru lagðar á
frelsi kvenna að þessu leyti. Þannig eru aðeins örfá
ár síðan giftar konur öðluðust fjárræði
en áður urðu þær að fá samþykki
eiginmanns síns fyrir því til dæmis að eiga
bankaviðskipti eða skrifa undir samning. Venjur þjóðflokka
eru einnig sjaldan hliðhollar konum í efnahagslegu tilliti, þær
eru til dæmis oft lakara settar en karlar þegar kemur að
erfðum. Almennt eru laun kvenna lægri en laun karla og þær
búa einnig við meira atvinnuleysi en þeir. Af þessum
sökum falla mun fleiri konur en karlar í hóp þeirra
fátækustu. Þær konur sem reka heimili án
eiginmanns sem leggur fé til fjölskyldunnar eru í mörgum
tilvikum sérstaklega illa staddar, en það á við
um nær þriðjung heimila í landinu.
Stjórnarskrá Namibíu kveður á um jafnrétti
kvenna og karla. Hún mælir einnig fyrir um jákvæða
mismunun fyrir alla þá sem áður máttu búa
við ójafnrétti, hvort sem var vegna kynþáttar
eða kyns. Orð eru til alls fyrst, en mikið verk er þó
óunnið við að knýja fram raunverulegar breytingar
í jafnréttisátt. |
||||||||||
| © JÁÞ maí 2001 | ||||||||||