|
Lifandi steingervingur |
||
|
|
||
| © JÁÞ | ||
|
Plantan Welwitschia er líklega þekktasta plöntutegund
Namibíu. Hún vex nær eingöngu á þröngu
belti í Namib eyðimörkinni. Þessi sérkennilega
eyðimerkurplanta, sem raunar telst dvergvaxin trjátegund, er
ævaforn tegund og hver einstök planta verður einnig með
afbrigðum langlíf. Hún er því stundum kölluð
lifandi steingervingur. Algengt er að plantan verði 500-1.000
ára gömul og fundist hafa einstakar plöntur sem náð
hafa 2.000 ára aldri. Welwitschia hefur aðeins tvö laufblöð
sem trosna og dökkna eftir því sem plantan eldist. Laufblöðin
geta orðið allt að þriggja metra löng og liggja
í flækju á jörðinni í skjóli
fyrir eyðimerkurvindinum. Ólíkt flestum öðrum
eyðimerkurplöntum, sem hafa lítið yfirborð laufblaða
til að takmarka vatnstap, hafa laufblöð Welwitchia plöntunnar
mikið yfirborð og á þeim eru milljónir loftauga
sem drekka í sig raka úr þokunni sem liggur yfir eyðimörkinni
um 200 daga ársins. Þokan stafar af nálægð
Benguela hafstraumsins en hann kemur frá Suðurskautsvæðinu
og fer norður með strönd Namibíu. Welwitschia er þannig
dæmi um tegund sem hefur lagað sig að ákaflega sérstökum
náttúruskilyrðum og hún á engan sinn líka.
Tegundin er friðuð og liggja þung viðurlög við
að skemma hana eða fjarlægja frá vaxtarstað. |
||
|
Forsíða Forsíða --- Efst á síðu --- Verkefnaskil --- Nemendasíða --- UmræðurE © JÁÞ maí 2001fst á |
||