Nemendasíða

 

© JÁÞ

 

NámsáætlunN
Námsáætlun

  1. vika. Lestu kaflana: Land og þjóð, Helgrindarströndin, Saga og Sanþjóðflokkurinn. Verkefni: Farðu inn á vef Veðurstofu Íslands og náðu í meðalhitastig í Reykjavík í janúar og júní. Búðu til stöplarit sem sýnir hitastig í höfuðborg Íslands Reykjavík og Windhoek höfuðborg Namibíu og mismun hitastigs á hvorum stað.
  2. vika. Lestu kaflana: Sjálfstæði og lýðræðisþróun og undirkaflana Stjórnmál og Utanríkismál. Verkefni: Skrifaðu frásögn úr köflunum og tilgreindu eftirfarandi: Eiga Ísland og Namibía eitthvað sameiginlegt varðandi stjórnarfar landanna? Er eitthvað sem er ekki eins? Hvað kom þér á óvart við lesturinn?
  3. vika. Lestu kaflana: Efnahagsmál og undirkaflann Helstu atvinnuvegir, Arf aðskilnaðarstefnu í landbúnaði og Samgöngur og fjarskipti. Verkefni: Búðu til súlurit um símalínur, sjónvarpseign og tölvueign í Namibíu og á Íslandi og notaðu til þess töfluna sem gefin er upp í kaflanum um samgöngur og fjarskipti.
  4. vika. Lestu kaflana: Náttúruauðlindir og umhverfismál, Villt dýralíf og Lifandi steingervingur! Verkefni: Í umhverfisstefnu Namibíu er verið að tala um að áhersla verði lögð á sjálfbæra þróun. Lýstu því sem verið er að tala um með sjálfbærri þróun.
  5. vika. Lestu kaflana: Samfélagsmál, Menning, Flutt á mölina og Trúarbrögð. Verkefni: Farðu inn á vef Hagstofu Íslands http://www.hagstofa.is og athugaðu hvað mörg tungumál eru töluð á Íslandi og hvað margir trúarhópar eru skráðir.
  6. vika. Lestu kaflana: Cynthia og Engelberta, Menntun, Heilsufar og Jafnréttismál. Verkefni: Farðu inn á vef menntamálaráðuneytisins: http://www.menntamalaraduneytid.is og athugaðu hvort þar er að finna lög eða reglur sem segja til um hámarksfjölda nemenda í bekk í skólum á Íslandi.
  7. vika. Lestu kaflann Þróunarsamvinna. Verkefni: Farðu inn á vef ÞSSÍ, slóðin er: http//www.iceida.is og athugaðu hvort eftirfarandi greinar eru inni á vefnum: Ágrip af 20 ára sögu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Sjómannaskólinn í Walvis Bay og Afhending Fræðslumiðstöðvarinnar í Walvis Bay. Veldu eina af þessum greinum til að lesa. Ef greinarnar eru ekki á vefnum er þær að finna í Fréttabréfi um ÞRÓUNARMÁL nr.29, 16.árgangur, 1.tbl. apríl 2001. Sendu annað innleggið þitt í vefumræðuna úr efninu sem þú velur til að lesa.
  8. og 9. vika. Tveir og tveir nemendur fá 10 mínútur saman til að kynna í tölvutæku formi fyrir bekknum þætti sem þeir hafa valið úr lesefni.

    Forsíða ---
    Efst á síðu --- Verkefnaskil --- Umræður
    © JÁÞ maí 2001--------------------------------------------------------------------------------------------------------------