Samfélagsmál
Félagslegar aðstæður í Namibíu eru ákaflega mismunandi eftir uppruna fólks. Efnahagur er ójafn og hver þjóðflokkur hefur sína eigin menningu. Aðstæður þeirra sem búa í dreifbýli og þéttbýli eru einnig ólíkar. Íbúar borga og bæja hafa til dæmis mun betri aðgang að ýmiss konar félagslegri þjónustu, svo sem menntun og heilbrigðisþjónustu, en íbúar dreifbýlisins
Menning

Namibía á sér mjög langa menningarsögu. Manngerðir hellar og klettaskútar í norðurhluta landsins eru til vitnis um búsetu mannsins þar fyrir mörgum þúsundum ára. Vegna þess hve margir þjóðflokkar hafa tekið sér búsetu í landinu gegnum tíðina er menningin ákaflega fjölskrúðug. Frásagnalist, tónlist, dans og handverk hafa um langan aldur verið lifandi hluti af staðbundinni menningu þjóðflokkanna en þeir hafa líka orðið fyrir áhrifum og lært hver af öðrum.

Tungumál og uppruni skilja þjóðflokkana að en aðrir þættir eins og klæðaburður og hárgreiðsla geta einnig verið einkennandi fyrir ákveðna þjóðflokka. Konur af Hereroþjóðflokki eru til dæmis þekktar fyrir litskrúðuga og íburðarmikla kjóla. Kjólarnir eru settir saman úr mörgum pilsum. Hætta er á að snákar eða skordýr flækist í pilsunum og því er algengt að konurnar geymi kjólana á eins konar reykgrindum þegar þær eru ekki að nota þá. Lyktin af reyknum á þá að fæla allan ófögnuð frá á meðan þær klæðast kjólunum. Annað dæmi um siði er hárgreiðsla kvenna í Himbiþjóðflokknum. Mismunandi tegundar af fléttum segja til um stöðu viðkomandi í þjóðflokknum. Til dæmis er hægt að segja til um hvort kona er orðin kynþroska, hvort hún er gift og hvort hún er búin að eignast barn, allt eftir því hvernig hárgreiðslu hún er með.

Hver þjóðflokkur hefur sína sérstöku matarmenningu sem oft tengist búsetu og atvinnuháttum. Aðalfæða Ovambofólksins, sem er fjölmennasti þjóðflokkurinn, heitir mielie papa, og er maísgrautur, eða mahango, sem einnig er einskonar grautur eða súpa. Fjölbreytilegt grænmeti er algengt meðlæti, en einnig fiskur eða kjöt. Namaþjóðflokkurinn er frægur fyrir dálæti sitt á stórum melónum sem eru kallaðar !nara (upphrópunarmerkið stendur fyrir eitt af hinum óvenjulegu klikkhljóðum í tungumáli þjóðflokksins), og hefur ávöxturinn verið hluti af fæðu þeirra og menningu í þúsundir ára. Þessa tegund melóna er aðeins að finna í Namib eyðimörkinni og telja sumir að án hennar hefði búseta manna ekki verið möguleg á þessum slóðum. Uppskeran á hverju ári er því mikilvægur viðburður meðal Namafólksins. Mjólkurafurðir eru áberandi í fæðu Hereroþjóðflokksins, enda hirðingjasamfélag, en fæða hvítra er undir evrópskum áhrifum, einkum þýskra.

Hinn margbreytilegi og ólíki menningarlegi bakgrunnur namibísku þjóðarinnar gerir það verkum að mun erfiðara er að skapa þar sameiginleg gildi og þjóðarvitund en í einsleitu þjóðfélagi eins og Íslandi. En vissulega má þó líka líta á fjölbreytnina sem styrk namibísku þjóðarinnar. Menningarlegur margbreytileiki felur í sér mikla möguleika á að skapa ríkt og kraftmikið þjóðfélag, svo lengi sem fólki er ekki mismunað og virðing er borin fyrir ólíkum menningarverðmætum.
(©ÞSSÍ)

 

Forsíða
Efst á síðu
Verkefnaskil
Nemendasíða

Umræður

 

© JÁÞ Heimili og vinnustaður
© JÁÞ -----------------------------------------------------------------------------Hererofólk
© JÁÞ ------------------------------------------------------------Handverksmarkaður
© JÁÞ maí 2001