Samgöngur og fjarskipti
![]() |
| © JÁÞ | |||||
| Namibía hefur yfir góðu
samgöngukerfi að ráða. Auk vegakerfis sem er vel við
haldið ganga lestir milli helstu þéttbýlisstaða
og flugsamgöngur við umheiminn eru góðar. Góðar
hafnir er einnig að finna bæði í Walvis Bay og Lüderitz.
Slæmar samgöngur ættu því ekki að vera
þáttur sem hindrar hagvöxt eins og oft vill vera í
fátækari löndum heimsins.
Fjarskiptanet Namibíu er í óvenjugóðu
ástandi miðað önnur Afríkuríki. Um 90%
símakerfisins er stafrænt og símaeign er algengari
en í nágrannalöndunum, eða um einn sími
á hverja 20 íbúa. Fjarskipti við útlönd
bættust til muna með tilkomu gervihnattastöðvar og
alþjóðlegs skiptiborðs í Windhoek árið
1995. Lagning ljósleiðara til Suður-Afríku er einnig
vel á veg komin og mun auka flutningsgetu enn meira. Notendum netsins
fjölgar ört í Namibíu sem og annarsstaðar
og eru flestar ríkisstofnanir og stærstu fyrirtæki
komin með netföng. Forsíða
--- Efst
á síðu --- Verkefnaskil
|
|||||
|
Upplýsingatækni Namibía-------Ísland----------- Símalínur á 1.000 íbúa 1996 ---------54--------576 Sjónvarpseign Tölvueign á 1.000 íbúa 1996----------13-------206
Heimild: Human Development Report 1999
© JÁÞ maí 2001 |
|||||