Þróunarsamvinna
| Ísland og Namibía
Þróunarsamstarf Íslendinga og Namibíumanna
hófst árið 1990 og hefur frá upphafi einkum beinst
að sjávarútvegi. |
||
| © JÁÞ | ||
| Skipta má starfsemi ÞSSÍ
í fjóra hluta.
Í fyrsta lagi hafa íslenskir sjávar- og fiskilíffræðingar starfað á vegum ÞSSÍ og namibíska ríkisins í Hafrannsóknastofnun Namibíu, sem staðsett er í bænum Swakopmund. Íslenskir tækniráðgjafar hafa jafnframt starfað um borð í namibískum hafrannsóknaskipum. Þessum þætti er nú að mestu lokið. Annar þáttur starfseminnar er uppbygging sjómannaskóla í Walvis Bay. Tilgangur skólans er að þjálfa Namibíumenn svo þeir verði færir um að sinna vélstjórn og skipstjórn á sínum eigin skipum í framtíðinni. Íslendingar hafa sent kennara til starfa við skólann og aðstoðað við byggingu húsnæðis fyrir skólann. Auk þess hafa namibískir kennarar fengið þjálfun á Íslandi. Árið 2000 voru íslenskir kennarar við skólann sex talsins og er þessi fræðsluþáttur umfangsmesta verkefni ÞSSÍ í Namibíu. Enn annað verkefni ÞSSÍ í Namibíu tengist fiskimálaskrifstofu SADC, sem eru þróunarsamtök ríkja í sunnanverðri Afríku. Skrifstofan er staðsett í Namibíu og hefur yfirumsjón með samstarfi ríkjanna í sjávarútvegi. Hlutverk skrifstofunnar er m.a. að vera leiðandi í stefnumótun, stjórnun og framkvæmd verkefna sem miða að því að þróa sjávarútveg á svæðinu. Íslendingar hafa tekið þátt í starfsemi þessarar skrifstofu frá árinu 1992 og veitt bæði tækni- og fjárhagsaðstoð. Áherslubreytingar hafa orðið í þessu verkefni og stuðningi er nú einkum beint að fiskimálageira Namibíu. Að síðustu ber að nefna fullorðinsfræðsluverkefni
en hlutur þess þáttar hefur verið aukinn með
því að stofnunin réði til sín árið
1999 sérstakan ráðgjafa til að sinna honum. ÞSSÍ
hefur í nokkur ár stutt fullorðinsfræðsluverkefni
í tveimur bæjum, Lüderiz og Walvis Bay. Bæði
þessi verkefni hafa einkum beinst að menntun kvenna. Sérstök
áhersla er lögð á enskukennslu og stærðfræði
en einnig er kennsla í handavinnu. Þá hefur fræðslu
um réttindi og skyldur í samfélaginu, fjölskylduráðgjöf,
hreinlæti og fleiri málefni verið fléttað
inn í verkefnin. Boðið er upp á gæslu fyrir
börn kvennanna á meðan þær stunda námið.
Forsíða --- Efst á síðu --- Verkefnaskil --- Nemendasíða --- Umræður © JÁÞ maí 2001 |
||