Trúarbrögð

 

 

Kristni hefur náð útbreiðslu í Namibíu og eru a.m.k. 80% íbúanna kristnir. Flestir eru mótmælendur og um helmingur þeirra tilheyrir lúthersku kirkjunni. Stóra hópa kaþólskra er einnig að finna í landinu. Áhrifa kristninnar gætir víða og sem dæmi má nefna er gospelstónlist, sem trúboðar voru frumkvöðlar að, virkur þáttur í listalífi landsins.

© JÁÞ

Lítill hluti landsmanna hefur haldið sínum hefðbundnu afrísku trúarbrögðum sem byggjast oft á tilbeiðslu á öndum forfeðranna og náttúrunnar. Í þessum trúarbrögðum tengjast guðirnir gjarnan samheldni samfélaganna þar sem í hávegum er höfð virðing fyrir hinum eldri og þeim sem látnir eru. Gömlu afrísku trúarbrögðin eru þannig samofin menningu þjóðflokkanna. Margir þeirra eiga ríkulegan arf helgisiða og þjóðtrúar sem tengjast náttúrulegum og yfirnáttúrulegum fyrirbærum.
(©ÞSSÍ)

Forsíða --- Efst á síðu --- Verkefnaskil --- Nemendasíða --- Umræður

© JÁÞ
© JÁÞ maí 2001