Villt dýralíf

Í hinu breytilega og sérstaka landslagi Namibíu er afar fjölskrúðugt dýralíf, allt frá smæstu tegundum skordýra til stærstu tegunda spendýra. Margar tegundir eru auk þess einstakar fyrir þetta svæði.

Jafnvel í eyðimörkinni má finna stór spendýr eins og fíla, gíraffa, sebrahesta og nashyrninga. Ljón hafa hins vegar hörfað inn til landsins vegna ágangs veiðiþjófa. Hópur flamingófugla hefur aðsetur í Etosha þjóðgarðinum í norðri. Í honum er einnig að finna fjölda annarra dýrategunda og er hann talinn í hópi merkustu þjóðgarða Afríku. Þá er mikinn fjölda sela að finna við ströndina, um miðbik strandlengjunnar.

Ágangur mannsins á náttúruna hefur leitt til hnignunar villts dýralífs í Namibíu eins og víða annars staðar. Dæmi um dýr sem talin eru í útrýmingahættu eru svartir nashyrningar og hlébarðar, en fækkað hefur í flestum dýrategundum á síðustu áratugum. Fólk er þó að vakna til vitundar um mikilvægi hins villta dýralífs, ekki síst fyrir þær sakir að ferðamenn laðast til Namibíu vegna dýranna og er ferðaþjónusta hratt vaxandi atvinnugrein. Verndun villts dýralífs er þess vegna hátt á forgangslista stjórnvalda. Alls er 21 þjóðgarður í landinu og taka þeir yfir rúmlega 15% lands en átak í verndun hefur einnig beinst að landi í einkaeign og á sameignarsvæðum. Verndunaraðgerðirnar miða að því að færa auðlindastjórnunina til fólksins sem býr á svæðunum og hafa þær þegar skilað góðum árangri.
(©ÞSSÍ)

Forsíða --- Efst á síðu --- Verkefnaskil --- ----------------------------Nemendasíða --- Umræður

 

© JÁÞ
© JÁÞ
© JÁÞ maí 2001