|
Hönnun
á kennsluvefjum/vefsíðugerð (2 e)
Umsjón Salvör Gissuradóttir.
Lestur
fyrir byrjendur. Kennsluvefur í lestri. Það
er rétt að koma byrjunarmynd á þennan vef.
Hann var lengi í fæðingu, sérstaklega útaf
vandamáli við að koma hljóði inn. Eins
og hann er núna er bara hljóð á A síðunni.
Mig langar til þess að komast í betri hljóðgræjur
áður en ég held áframa með hljóðsetninguna.
Vefurinn er mjög lengi að hlaðast inn í fyrsta
skipti en er fljótari eftir það og getur vel komið
að gagni inn á innra neti skóla. Ég byrjaði
á vefnum í FrontPage en skipti síðan yfir
í Dreamweaver. Ég byrjaði að vinna stóru
myndirnar í Fire Works en skipti síðan yfir í
Photo Draw. Myndirnar af krökkunum eru unnar uppúr ljósmyndum
og ég fékk leyfi til að birta þær.
Fuglavefleiðangur.
Unninn í byrjun í FrontPage síðan endurunninn
í Dreamweaver, FireWorks og PhotoDraw.
Nýsköpunarvefleiðangur.
Þessi vefur var líka endurunninn í Dreamweaver
og líklega flippaði ég þarna út!
Gamla útgáfan er á sínum
stað ennþá til samburðar, unninn í
FrontPage.
|
|
Netsamskipti (1/2
e).
Umsjón: Salvör
Gissurardóttir & Þuríður Jóhannsdóttir.
Ég tók
ekki mikinn þátt í umræðum á
webboard en auðvitað eitthvað. Ég sendi
inn framlag um samanburð á leitarvélum,
það helsta á UT2000, um vefleiðangra,
um þarfagreiningu á vef og fl. Ég tók
saman á vefsíðu
helstu vefverkfæri sem ég hef verið að
prófa.
|
|
Námsumhverfi
á vefnum (1/2 e).
Umsjón: Salvör
Gissurardóttir & Þuríður Jóhannsdóttir.
Þessi þáttur
er mjög mikilvægur. Þegar maður er að
kenna ungum börnum sem ekki geta nýtt sér
vefinn mikið hjálparlaust liggur beinast við
að höfða til foreldra. Til þess notaða
ég Skólatorgið,
en í vetur byggði ég upp bekkjarvef þar.
Þessi vefur var hugsaður til þess að bæta
samskipti heimilis og skóla og er enn í þróun.
Það sem mér finnst umhugsunarvert í
þessu sambandi er tíminn sem þetta tekur.
Ekki eru allir kennarar í námi til þess
að réttlæta þessa vinnu!!Að vísu
datt botninn svolítið úr þessum samstarfsvettvangi
þar sem ég lá í rúminu seinustu
tvær vikurnar í maí. Það verður
gaman að þróa þennan vef enn frekar
næsta vetur.
|
| |
|
|
Nýting í
skólastarfi (1 e).
Umsjón: Sólveig
Jakobsdóttir.
Ég tók þátt
í rannsókn um notkun barna á Internetinu.
Ég tók þátt
í umræðum á webboard og sendi inn tvö
framlög á vefsíðum, fleiri beint inn.
Geta tölvur séð
um kennsluna?
http://www.ismennt.is/not/jbj/frederick_bennett.htm
Á að kenna börnum
vélritun áður en þau fá tölvukennslu???
http://www.ismennt.is/not/jbj/keyboarding_skills.htm
Ég tók svo þátt
í Innovation Forum á European Schoolnet: .safe discussion
og eWizard..
|
Valið verkefni (1 e).
Verkefnin sem ég skila hér
inn eru tvö.
Annarsvegar er það vefur sem
ég óf vegna þemavinnu Barnaskólans
á Eyrarbakka og Stokkseyri. Árlega höfum við
þemaviku og þá bjóðum við 5
ára leikskólabörnum í skólann.
Þetta árið var þemað Samskipti og samvera.
Kveikjan af þemanu var velheppnaður fyrirlestur sem
Jón Baldvin Hannesson,einn af ráðgjöfum
AGN
- aukin gæði náms hélt fyrir okkur. Ég
tók að mér að sjá um upplýsingatæknistöðina
í þemanu og bjó svo til vefinn Samskipti
og samvera, til þess að setja efni krakkanna fram.
Þessi vefur er bæði sýningarsalur og námsvefur,
því börnin vita margt um samskipti og það
er hægt að læra af þeim. Vefurinn er unninn
í FrontPages en ég hreinsaði hann samt í
Dreamweaver áður en ég setti hann á mitt
vefsvæði.
. Hinsvegar er það vefur sem
varð til af því að ég hef mikinn áhuga
á forritum sem hægt er að nýta í
skólastarfi. Mér datt í hug að búa
til vef um Tölvur
og börn. Með tímanum vonast ég til
þess að fá skoðanir og ábendingar
frá öðrum og að þarna safnist vitneskja
um hentug forrit, vefi fyrir börn og vefi fyrir þá
fullorðnu til að lesa. Þetta er fyrsti vefurinn
sem ég vinn frá grunni í Dreamwever.
|