Vefleiðangur til London er ætlaður fyrir nemendur í tölvuáföngum.
Með því að fara í gegnum hann eiga þeir að læra að leita á Vefnum að
því sem þeir óska eftir.
Einnig læra þeir að senda skýrslu sem viðhengi í tölvupósti, því
vefleiðangrinum lýkur á því að nemendur gefa skýrslu um niðurstöður
sínar og senda kennara sem viðhengi í tölvupósti.
Í heild
á verkefnið að taka u.þ.b. eina til tvær vikur.
Kennari kynnir verkefnið fyrir nemendum.
Þeir eiga síðan að vinna sjálfstætt – í tölvuveri eða heima – og
skila síðan niðurstöðum í lok seinni vikunnar í skýrsluformi til
kennara sem viðhengi í tölvupósti. Allar tengingar í síður á Vefnum
þurfa að vera virkar í skýrslunni.
Nemendur
vinna einn til tveir saman og ímynda sér að þeir séu að fara í ferð
til London. Þar ætla þeir að dvelja þar í nokkra daga.
Þeir
eiga að leita á Vefnum að ódýru hóteli á bilinu 80–140 pund fyrir
tveggja manna herbergi. Það á að vera staðsett nálægt
neðanjarðarbrautarstöð.
Flogið
er með Flugleiðum beint til Heathrow-flugvallar. Þaðan er tekin lest
til Paddington Station.
Ef flogið er með Iceland Express er lent á Stansted-flugvelli. Þaðan
er lest til Liverpool Street Station.
Síðan vinna nemendur eftirfarandi verkefni:
a)
Kanna hvaða söngleiki er verið að sýna í London á þeim tíma sem
dvalið er þar; einnig tíma og verð og hvort hægt sé að panta í
gegnum Vefinn og greiða með greiðslukorti.
b)
Þeir, sem áhuga hafa á að fara á fótboltaleik meðan á
dvölinni stendur, athugi hvort, hvenær og hvar og hvaða lið verða að
keppa.
Ef leikurinn er ekki í London (t.d. í Liverpool eða Manchester), á
að finna út hvernig hægt er að komast til staðarins með lest.
c)
Nemendur kanni möguleika á að fara í kynnisferð um borgina.
Þeir athugi verð, tíma og ferðatilhögun og taka fram hvaða staðir
verða skoðaðir í ferðinni.
d)
Nemendur kynni sér helstu verslanir og útimarkaði í London.
e)
Nemendur finni helstu söfn í London.
Þeir velja eitt af þeim og og skrifa stutta lýsingu á safninu
(málverk, höggmyndir, fornleifar).
|