LinkStar,
Infoseek , Starting Point, AltaVista, World Wide Web Yellow Pages,
Egilsstaðir
Jónas Gunnlaugsson - heimasíða / hompage
Photo ©Mats Wibe Lund - Use of these photographs is prohibited without permit.
Fleiri loftmyndir - More air photographs
Fáeinar myndir - A few photographs.
Egilsstaðir við Lagarfljót (Löginn) á Fljótsdalshéraði, eru miðstöð samgangna á Austurlandi. Hringvegurinn liggur í gegnum bæinn og er þaðan nokkurn veginn jafnlangt til Reykjavíkur norður og suður um land. Þaðan liggja vegir út um Hérað og niður á firði. Þar er einnig flugvöllur.Í skrifuðum heimildum er getið um Egilsstaði sem þingstað frá fimmtándu öld. Getið er um Eyvindará í Droplaugarsonasögu og Fljótsdælu sem er samin, fyrir eða um árið 1000 að sumir segja.
Umferð var alla tíð að norðan og norður yfir brýr á Jökulsá á Dal og þvert yfir Fljótsdalshérað, yfir Lagarfljót utan við Egilsstaði, á ýmsum vöðum og ferjum. Síðan lá leiðin áfram í Eiða, Egilsstaði, Ketilsstaði og Vallanes eða upp í Skriðdal og einnig niður á firðina. Þegar Lagarfljótsbrúin var byggð 1902 til 1905 og vegur til Reyðarfjarðar 1903 til 1909, og síðar vegir um Hérað urðu Egilsstaðir enn frekar á krossgötum.
Póstafgreiðsla kom í Egilsstaði 1872, landsímastöð 1906 og gistihús 1914.
Árið 1905 var Mótorbátsfélagið til og fór ferja úr Egilsstaðavíkinni með fólk og vörur um Lagarfljót.
Lítill grasflugvöllur var gerður 1942, sjóflugvélar með farþega lentu um tíma á Leginum og komu í Egilsstaðavíkina. Allgóður malarflugvöllur var gerður 1952. Þá sögðu menn að nú lægju leiðir til allra átta, norður, suður, austur, vestur og upp í loftið eða 5 áttir. Núverandi flugvöllur, með slitlagi, var tekinn í notkun í nóvember 1992 og formlega af samgönguráðherra 23.09.1993.
Egilsstöðum, er svo lýst í Landið þitt Ísland 1. bindi frá 1980. "Þar er víðsýnt um Fljótsdalshérað og allt inn að Snæfelli. Eftir að Lagarfljót var brúað og Fagradalsbraut gerð urðu Egilsstaðir sjálfkrafa miðstöð Héraðsins. Bærinn stendur fagurlega við vík úr Lagarfljóti og tún eru þar ef til vill meiri en á nokkru öðru býli á landinu. Mikill trjágarður prýðir staðinn. Egilsstaðaskógur er bæði víðlendur og fríður. Þar vex villt ösp (Populus tremula) hæst hér á landi." Þar bjuggu framkvæmdamenn í bændastétt og í samvinnu og verslunarmálum.
Árið 1944 var fyrsta íbúðarhúsið og Sjúkrahús reist á ásnum (Gálgaásnum), ofan við tún á Egilsstöðum, og þá varð Egilsstaðalæknishérað til. Búvélaverkstæði kom 1945, dýralæknir hefur setið þar frá 1946, útibú frá Kaupfélagi Héraðsbúa á Reyðarfirði kom 1946, og slátur og frystihús kaupfélagsins 1947.
Egilsstaðir urðu sérstakt sveitarfélag 24. maí 1947, og voru bæirnir Egilsstaðir I og II, Kollstaðir og Kollstaðagerði færðir frá Vallahreppi og Eyvindará, Miðhús, Steinhollt, Dalhús og Þuríðarstaðir færðir frá Eiðaþinghá í hið nýja sveitarfélag.
Við stofnun Egilsstaðahrepps varð hann sérstakt skólahverfi og var skólahús tekið í notkun 1957. Egilsstaðir urðu sérstök kirkjusókn, í Vallanesprestakalli 1960 og kirkja var vígð árið 1974. Menntaskólinn á Egilsstöðum tók til starfa 1979.
Egilsstaðahreppi var breytt í Egilsstaðabæ 24. maí 1987.
Íbúar á Egilsstöðum 01.12.1994 voru 1600. Aðal atvinnuvegir eru samgöngur, verslun, þjónusta, iðnaður og landbúnaður.
Samgöngur til Egilsstaða eru um hringveginn, 700 km til Reykjavíkur hvort sem farið er norður eða suðurleiðina, 274 km til Akureyrar og 245 km til Hafnar í Hornafirði.
Á Seyðisfjörð eru 24 km en þar er bílaferjuhöfn fyrir þá sem koma frá Evrópu. Þá er farið í ferjuna í Þórshöfn í Færeyjum, Bergen í Noregi eða Esbjerg í Danmörku.
Flug til og frá Egilsstöðum er frá Reykjavík, Akureyri, Höfn í Hornafirði og einstaka sinnum til og frá Glasgow í Skotlandi, Dublin í Írlandi og Zurich í Sviss.
Egilsstaðir or Egilsstadir in Hérað or Herad in Iceland or Islande capital ReykjavikEgilsstaðabær the community
tel.354-471 1166
fax:354-471 1494
Heim
![]()
| Pósthólf / Postbox:.... JGEG|
Hjaltastaðaþinghá--- Eiðaþinghá, Eiðar--- Vellir ---Hallormsstaður--- Skriðdalur--- Fljótsdalur--- Hróarstunga---Egilsstaðir--- Egilsstaðabær--- Menntaskólinn á Egilsstöðum og Eiðum--- Ýmsir staðir á Austurlandi.
LinkStar, Infoseek , Starting Point, AltaVista, World Wide Web Yellow Pages,