Ef þú smellir á leitun í Biblíunni, þá ferð þú út úr þessu og verður að hlaða það inn aftur !

![]()
Matteus 2:13 En er þeir voru burt farnir, sjá, þá vitraðist engill Drottins Jósef í draumi og segir:
Rís upp og tak barnið og móður þess með þér og flý til Egiptalands, og ver þar þangað til ég segi þér,
því að Heródes mun leita barnsins, til að fyrirfara því.
![]()
Jóhannes 2:7 Jesús segir við þá: Fyllið nú kerin með vatni; og þeir fylltu þau á barma.
![]()
Markús 8:22 Og þeir komu til Betsaída; og menn koma með blindan mann til hans
og biðja hann að snerta hann.
![]()
Jóhannes 4:9 Samverska konan segir þá við hann: Hvernig bíður þú, sem ert Gyðingur,
mig, samverska konu, um að drekka? Því að Gyðingar eiga ekki mök við samverska menn.
![]()
Lúkas 8:55 Og andi hennar sneri aftur, og hún reis upp þegar í stað;
og hann bauð að gefa henni að eta.
![]()
Markús 10:15 Sannlega segi ég yður: hver, sem ekki tekur á móti guðsríki eins og barn,
mun alls eigi inn í það koma.
![]()
Markús 10:21 En Jesús horfði á hann og fór að þykja vænt um hann og sagði við hann:
Eins er þér vant; far þú og og sel allar eigur þínar og gef fátækum,
og munt þú fjársjóð eiga á himni; kom síðan og fylg mér.
![]()
Matteus 14:31 En jafnskjótt rétti Jesús út hönd sína, tók í hann og segir við hann:
Þú lítiltrúaði, hví efaðist þú?
![]()
Matteus 22:21 Þeir segja við hann: Keisarans. Þá segir hann við þá:
Gjaldið þá keisaranum, það sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.
![]()
Markús 11:9 Og þeir, sem fóru á undan, og þeir, sem fylgdu á eftir, hrópuðu:
Hósanna ! blessaður sé sá, sem kemur í nafni Drottins !
![]()
Markús 11:17 Og hann kenndi og sagði við þá: Er ekki ritað: Hús mitt á að nefnast
bænahús fyrir allar þjóðir? En þér hafið gjört það að ræningjabæli.
![]()
Jóhannes 13:14 Ef þá ég, herrann og meistarinn, hefi þvegið fætur yðar,
ber einnig yður að þvo hver annars fætur;
![]()
Matteus 26:25 En Júdas, er sveik hann, svaraði og sagði: Er það ég , rabbí?
Hann segir við hann: Þú sagðir það.
![]()
Matteus 26:26 En er þeir mötuðust, tók Jesús brauðið, blessaði og braut það,
og gaf lærisveinunum það og sagði: Takið og etið; þetta er líkami minn.
![]()
Markús 14:36 Og hann sagði: Abba, faðir ! allt er þér mögulegt;
tak þennan bikar frá mér; þó ekki sem ég vil, heldur sem þú villt.
![]()
Markús 14:39 Og enn veik hann burt og baðst fyrir með sömu orðum.
![]()
Matteus 26:48 En sá, er sveik hann, gaf þeim tákn og sagði:
Sá er eg kyssi, hann er það. Handtakið hann.
![]()
Matteus 26:75 Og Pétur mintist þess, er Jesús hafði sagt: Áður en haninn galar,
muntu þrisvar afneita mér. Og hann gekk út fyrir og grét beisklega.
![]()
Matteus 27:31 Og er þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr kápunni,
og færðu hann í hans eigin klæði; og þeir fóru burt með hann til krossfestingar.
![]()
Matteus 27:13 Þá segir Pílatus við hann: Heyrir þú ekki,
hve mjög þeir vitna gegn þér?
![]()
Matteus 27:51 Jesús kallaði aftur hárri röddu og gaf upp andann.
![]()
Matteus 27:59 Og Jósef tók líkið, sveipaði það hreinu línklæði
og lagði það í hina nýju gröf sína,
![]()
Markús 16:9 Og er hann var upprisinn árla hinn fyrsta dag vikunnar,
birtist hann fyrst Maríu Magdalenu, henni, sem hann hafði rekið út af sjö illa anda.
![]()
Jóhannes 20:27 Síðan segir hann við Tómas:
Kom hingað með fingur þinn og sjá hendur mínar,
og kom með hönd þína og legg í síðu mína;
og vertu ekki vantrúaður, heldur trúaður.
![]()
Lúkas 24:51 Og meðan hann var að blessa þá,
skildist hann frá þeim og varð uppnumin til himins.
![]()
![]()
Þessar myndir úr Bíblíunni eru frá Kirkjunni í Ameríku.