Kærleiksboðorðið

    Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum og af öllum mætti þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig. (Mark 12, 30-31)


Boðorðin tíu

  1. Ég er Drottin, Guð þinn, þú skalt ekki aðra Guði hafa.
  2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns við hégóma.
  3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
  4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.
  5. Þú skalt ekki mann deyða.
  6. Þú skalt ekki drýgja hór.
  7. Þú skalt ekki stela.
  8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
  9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.
  10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu né nokkuð það, sem náungi þinn á.


Skírnarskipunin

Allt vald er mér gefið á himni og jörðu, Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá til nafns föðurins og sonarins og hins heilaga anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður. Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldarinnar. (Matt. 28, 18-20).


Innsetningarorð kvöldmáltíðarinnar

Vor Drottinn Jesús Kristur tók brauðið nóttina, sem hann svikinn var, gjörði þakkir og braut það og gaf sínum lærisveinum og sagði: Takið og etið, þetta er minn líkami, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu. Sömuleiðis eftir kvöldmáltíðina tók hann kaleikinn, gjörði þakkir, gaf þeim hann og sagði: Drekkið allir hér af, þetta er kaleikur hins nýja testamentis í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt til fyrirgefningar syndanna, gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið í mína minningu.


Trúarjátningin

Ég trúi á Guð föður, almáttugan skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesúm Krist, hans einkason, drottin vorn, sem getin er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafin, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs, og mun þaðan koma, að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu holdsins (dauðra) og eilíft líf.


Bænir



Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja. Þeir hyggja, að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína. Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann.
En þannig skuluð þér biðja: (Matt. 6, 7-8)

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.


Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður.
En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar. (Matt. 6, 14-15)


Vertu nú yfir og allt um kring

Vertu nú yfir og allt um kring,
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring,
sænginni yfir minni.


Ó Jesús bróðir besti

Ó Jesus bróðir besti,
og barna vinur mesti,
breið þú blessun þína,
á barnæskuna mína.


Það ætíð sé mín iðja

Það ætíð sé mín iðja,
að elska Guð og biðja,
og forðast allt hið illa,
svo ei mér nái að spilla.


Vertu Guð faðir, faðir minn

Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni
Hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni



Perlur



Sæluboðin

Sælir eru fátækir í anda, því þeirra er himnaríki.
Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða.
Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.
Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.
Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki. (Matt. 5. 3-10)



Óðurinn um kærleikann

Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum, og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur, en hefði ekki kærleika, væri ég engu bættari.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem er í molum.
Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn, hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis. Nú er þekking mín í molum, en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur (Kor.1.1-13)


Drottinn er minn hirðir

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Sálmarnir 23)


Smelltu hér til að leita í Biblíunni.


Heim

*