Sett á blogg til upplýsingar
Verðtrygging
Lánin lækka við hverja einustu greiðslu.
Verðtryggt lán er verðtryggt við krónuna, daginn,
sem þú tekur lánið.
Þú tekur að láni eina spýtu, einn sementspoka og
eina vinnustund,
á verðinu sem er á lántökudaginn, að vísu fleiri
vörur,
til að ekki sé reynt að greiða niður
vísitöluvörurnar.
Þegar þú greiðir af láninu, er greiðslan ein
spýta, einn sementspoki,
og ein vinnustund, á verði greiðslu dagsins, í 20,
30 eða 40 ár.
Þegar sagt er að lánið hafi hækkað, þá hefur
krónufjöldinn aukist,
en í verðminni krónum.
Vandamál lántakenda er, að núna í kreppunni, hækka
launin,
í verðminni krónum, en ekkí í samræmi við
verðhækkanir.
Eftir tvö til fjögur ár má búast við að launin hafi
náð verðtryggingunni.
Hjálpin getur falist í því að greiðslurnar miðist
við launin,
og færist aftur fyrir.
Árið 1983-4, hækkuðu launin um 50% en verðtryggðu
lánin um 90%.
Þá fengu lántakendur hjálp og eins ætti að gera
nú.
Einhver fékk 90000 kr útborgaðar
á mánuði og fór það allt í lánin.
Konan vann fyrir matnum.
Hjálpin miðist við fjölskyldur, tekjur, og
aðstæður. Örugg heimili og húsin,
eignirnar, í notkun.
Kaupgreiðslurnar í verðminni krónum, verða til
þess,
að atvinnuleysi er mun minna.
Ef við lítum til Evrópu þar sem Evran er
gjaldmiðill,
þá er atvinnuleysi að staðaldri 5-10-15 %.
Ef litið er á aldurinn 18 til 30 ára, þá er
atvinnuleysið 15-20-25%.
Sumir hafa aldrei haft vinnu, lifa í óöryggi og
eru hættir að þora að eignast börn.
Heyrist, að 50% af íbúum einhverra landa séu 50
eða 60 ára,
komnir úr barneign, þeim fækkar.
Það er hálf broslegt að þeim væri fyrir bestu að
fá okkar krónu,
til að geta haft alla, fleiri, í vinnu.
Þessar tölur eru eftir minni, og ber að líta það þeim
augum.
19.01.2009, jg