Slaufukenningin.
The Bow
Theory
Til að gera okkur óháð
peningum, gjaldmiðli,
sem einhver mið banki býr
til.
Til að gera okkur óháð
bankakerfi veraldarinnar.
Til að gera okkur óháð
skuldum sem einhver reynir að þvinga upp á okkur.
Við útbúum form, sem býður upp
á greiðsluslaufur,
í nánd, í fjarlægð, og milli
landa.
Þetta þarf að gerast þannig
að hver maður,
geti boðið sína starfsgetu
inn í slaufu, slaufur.
Ef gjaldeyriskerfi heimsins,
eða hugmyndaheimur okkar,
getur ekki boðið öllum að
lifa og starfa í þjóðfélögunum,
þá er eitthvað að.
Þá verðum við að breyta kerfinu, þessum hugmynda heimi,
þannig að allir geti verið með.
Þú átt að búa til formið.
Meira seinna.
Egilsstaðir, 16.09.2009
JG
---------------------------------------------------
Hér fyrir neðan er slaufa, bow.
Hvað er
gjaldeyrir, hvað gerir gjaldeyrir
og til hvers
er gjaldeyrir. (hér peningur)
Gjaldeyrir er verkfæri,
til að létta mönnum að koma
framleiðslu sinni í verð,
það er í aðra framleiðslu, vöru eða
þjónustu.
Klukkan
13:00
Gengill kom í
Gistihúsið á Egilsstöðum, og greiddi herbergi fyrir tvo í 10 daga, á
200.000 kr
Klukkan
13:15
Gistihúsið
notaði þessar upphæð til að greiða skuld hjá Mjólkurbúinu á Egilssöðum,
200.000 kr
Klukkan,
13:30
Mjólkurbúið
greiddi Húsasmiðjunni á Egilsstöðum byggingavöru skuld, að upphæð
200.000 kr
Klukkan
13:45
Húsasmiðjan
borgaði ógreidda gistingu, á Gistihúsinu á Egilsstöðum,
200.000 kr
Klukkan
14:00
Gengill kom og,
sagðist þurfa að fara á fund á Akureyri, og hvort hann gæti ekki hætt við,
og fengið
endurgreiðslu, sem hann og fékk,
200.000 kr
Þarna kom Gengill með 200.000 kr í eina
klukkustund, og veldur því,
að aðilar
geta greitt hver öðrum skuldir sínar.
Allir
sæmilega ánægðir.
Þú getur
einnig sagt að Gistihúsið hafi fengið lán í bankanum klukkan 13:00
og greitt
það aftur klukkan 14:00,.
Þá tekur
bankinn að vísu vexti.
Gjaldeyrir er verkfæri,
til að létta mönnum að koma
framleiðslu sinni í verð,
það er í aðra framleiðslu, vöru eða
þjónustu.
Egilsstaðir,
25.07.2009