Þ E I R - G R Æ N U
Umhverfisverndarmenn sem hafa mótmælt mengun þjóðanna,
á ám, vötnum,
landi og höfum, hafa verið hundeltir af lögreglu,
stofnunum og fyrirtækjum.
Þessar stofnanir og fyrirtæki hafa stöðvað peningagreiðslur til
þeirra rannsóknastofa,
og stundum myrt þá vísindamenn og aðra, sem lögðu
umhverfisverndarmönnum lið.
Miklar greiðslur hafa aftur á móti komið til þeirra vísindamanna,
sem
þjónað hafa misskildum hagsmunum kjarnorkufyrirtækja,
efnaiðnaðarfyrirtækja og
hvalveiðifyrirtækja.
Kjarnorkufyrirtækin og efnafyrirtækin hafa reynt að fá starfsleyfi,
og möguleika á að henda baneitruðum úrgangi,
á landið, í árnar eða í hafið.
Hvalveiðifyrirtækin hafa reynt að halda áfram rekstri.
þó að áhöld
væru um hvort að hvalastofnarnir,
þyldu meiri veiði.
Þegar þeir grænu hafa reynt að vekja athygli á menguninni,
við
kjarnorkuverin, efnaverin, og allsstaðar til lands og sjávar,
hefur lögreglu með
hjálma, skildi, kylfur og táragas,
verið sigað á þá.
Í Auckland á Nýja-Sjálandi, fórst einn maður, þegar skipi
Grænfriðunga var sökkt,
af frönsku leynilögreglunni, þegar Grænfriðungar reyndu
að vekja athygli á,
kjarnorkusprengingum, og kjarnorkumengun Frakka við Moraroa í
Kyrrahafi.
Í Atlanshafi hefur Grænfriðungum tekist með miklu harðfylgi,
og oft
með því að leggja sig í lífshættu,
þegar eiturtunnum hefur verið kastað ofan á
gúmhraðbáta þeirra,
að vekja almenna hræðslu vegna mengunar hafanna.
Ekki er í dag vitað, hvort Grænfriðungum hefur tekist að bjarga
fiskistofnum Íslendinga,
af því að eiturtunnurnar eru smátt og smátt að ryðga í
sundur og menga þá fiskistofnana.
Á Íslandi greiða hvalveiðarnar, stundaðar af Hval h/f og ríkinu,
tugi
miljóna króna til Hafrannsóknastofnunar,
að því er virðist til að geta haldið
hvalveiðum áfram.
Í útlöndum er mjög algengt, að reynt sé að halda stórhættulegum,
kjarnorkuverum og efnaverum gangandi,
vegna gróðahagsmuna eigendanna.
Eru þá
greiddar himinháar upphæðir,
til að reyna að fela eiturefnaleka,
og til að fá
sérfræðingastimpil á reksturinn.
Egilsstöðum, 16.3.1989 Jónas Gunnlaugsson
jonasg@ismennt.is
heim