Ég mótmæli heimsku.
Heimska tröllríður heiminum. Við eyðum og spennum, erum tillitslaus, hugsum ekki um okkar hag og náungans. Þjóðirnar ausa upp auðæfum jarðar og dreifa þeim út um allt og henda síðan öllu í ruslið, brenna það og grafa.
Allt sem við notum á að ganga í hring, nýta það
aftur og aftur.
Þegar við höfum nýtt einhvern hlut, hverju nafni
sem hann nefnist, hús, bíll, flugvél, mjólkurumbúðir, eigum við að
endurnýta allt efni úr honum og endurbyggja svo aftur með nýjustu byggingatækni
frá flugvéla og geimiðnaði.
Þá má byggja mun fleiri einingar úr sama efni.
Allt verður 10 sinnum léttara
og margfalt sterkara ef efnið er notað með þessari tækni. Við getum hætt
námuvinnslu að mestu þar sem ein gömul eining verður að 10 nýjum.
Þá verður ekkert rusl, við nýtum allt aftur.
Í stað þess að moka korni í svínið, nautið eða
fiðurféð eigum við að nota það sjálf. Þá dugar það í 6 til 30
sinnum fleiri menn, það fer svo mikil orka í að framleiða kjötið. Til að
minnka flutninga reynum við að rækta sem mest í húsagörðum og á húsþökum.
=============
Við erum að springa af ofáti.
Við borðum of mikið af sykri, allskonar sælgæti,
gosdrykkjum, bjór, alkohóli
og öllu sem við komum höndum yfir.
Við borðum oflítið af korni, grænmeti, ávöxtum
og rótarávöxtum.
Þess vegna verðum við móttækileg fyrir allskonar
kvilla og vandræði.
Þá þarf að koma upp mikilli heilsugæslu til að
reyna að rumpa okkur saman aftur.
Ef við aftur á móti borðum hollan mat og höfum nægilega hreyfingu, helst með útivist og göngum, hlaupi og sundi, og hreyfingu í vinnunni, við heimilisstörf og í garðinum, þá er von til að við verðum hraustari og okkur líði betur.
Að vísu á ekki að ofkeyra
sig, heldur að reyna að fá góða hvíld á milli,
=============
Ég mótmæli því að allir séu að mótmæla öllu.
Við segjum að það sé of mikið, of lítið, of
stórt, of hátt, of lágt, of litað, of grátt og svona höldum við áfram.
Einn er of feitur, annar of mjór, einn hefur of lág laun, annar of há laun
=============
Eigum við ekki að reyna að róa okkur niður,
afslappa og leita til náttúrunnar, og þess besta í eðli okkar, leyfa því
góða í okkur að ná yfirhöndinni.
Er þá ekki von til að okkur fari að líða vel og
að við getum þá geislað góðvildinni
til annarra, í stað þess að urra í allar áttir.
=============
Leitum að því góða,
en eyðum því neikvæða með mýkt og blíðu,
þá höfum við fundið Aldingarðinn Eden.
Egilsstaðir
(geimt/saved) 22.11.1995, kl.12:41 getur verið eldra, var á Ritvinna, nú
02.11.1999
Egilsstöðum, 22.11.1995, Jónas Gunnlaugsson
jonasg@ismennt.is