Öndvegissúlan
Við dönsuðum í kring um
Öndvegissúluna,
hún var svo góð, að við
gátum gert allt.
Við sögðum að við værum rík.
Einhver rak fótinn í hana,
þá var hún svo fúin, að hún brotnaði,
og valt um koll og reyndist
hún maðkétin.
Þá sögðum við að við værum
fátæk.
Vinnufúsar hendur voru áfram
til, náttúruauðlindir voru ennþá til,
verksmiðjurnar voru ennþá
til, Framleiðslu getan í landbúnaði,
sjávarútvegi, iðnaði, verslun og þjónustu var ennþá til.
Hvað er þá að. Þú veist það.
Ekkert hafði breyst, nema að
við vorum hætt að trúa á verðbréfin.
Voru það verðbréfin sem
höfðu framleitt eitthvað? Nei.
En hvað getum við sett í
staðin, fyrir trúna á verðbréfin.
Athuga seinna. jg