Tölvan er öflugasta tæki sem okkur hefur til hugar komið . . . .
Tölvusamskipti er afdrifaríkasta notkun tölvutækninnar til þessa . . . .

Það er mögnuð tilhugsun að geta heima í stofu, eða hvar annarstaðar í heiminum sem maður hefur
nettengda tölvu:

gluggað í það sem menntamálaráðherra hefur látið frá sér fara um þetta mál eða hitt . . .
grafið upp það sem einhver þingismaður á alþingi Íslendinga sagði um eitthvert tiltekið mál
úr ræðustóli þingsins í fyrra . . .
kynnt sér eitt og annað varðandi tölvur og netið, eða bara . . .
gramsað í / á vefnum sem er viskubrunnur ólíkur öllum öðrum  —  fræðilega gæti þar rúmast
„öll þekking mannsins!“  —  byrjaðu t.d. hérna.

Og þó er þetta víst aðeins forsmekkur þess sem í vændum er, a.m.k. ef maður tekur hálft mark á því sem spekúlantar um málið segja, nú eða bara því sem menntamálaráðuneytið hefur lýst sem stefnu sinni. . . .

Við munum „í næstu viku“ heima í stofu hafa aðgang að öllum þeim opinberu upplýsingum sem okkur eru heimilar sem borgurum þessa lands . . .  p æ l d u   í   þ v í ! !

Upp 22. september 1996