Nám og kennsla á netinu.
Námslota: Nýting í skólastarfi.
Verkefni 12. mars 2003.
Leiðbeinandi: Lára Stefánsdóttir.

Eftir talsverðar vangaveltur um aðkomu mína að náminu í vetur og hvernig ég vil að það nýtist mér í framtíðinni, hef ég smám saman verið að átta mig á hvert námið leiðir mig.

Ég get vel hugsað mér að vinna með fullorðnum fyrstu skrefin inn í upplýsingasamfélagið. Ég veit að það er stór hópur kvenna og karla á miðjum aldri, sem kunna lítið sem ekkert á tölvur og þarf lítið til að koma þeim af stað. Sem sagt á svipuðu róli og og margir miklu verri ég var áður en ég hóf UT námið við KHÍ.


Starfsfólk Grunnskólans fór í skólaheimsókn til Washington haustið 1999. Einn af skólunum, sem við heimsóttum var Marymount University Örlítil samskipti hafa verið milli einstakra starfsmanna síðan og nýlega hefur einn UT kennarinn, sem heitir Dr. Kristi Johnson í Marymount University, Virginiufylki, óskað formlega eftir samstarfi í tengslum við elstu nemendurna við Grunnskólann og get ég vel hugsað mér að vinna að þeim samskiptum strax næsta haust. Á þessari stundu er ekki fastmótað í hverju samstarfið mun felast en hugmyndir hafa komið fram um bréfaskipti og gagnkvæma verkefnavinnu og hvers kyns netsamskipti.


Mig langar til að tengja UT betur að mínum kennsluháttum með þá staðreynd í huga að samræmdu prófin í 10. bekk stýra kennslunni ansi mikið. Í dag nota ég vefi t.d. frá Námsgagnastofnun og Skólavefinn sem styðja við kennsluefnið og eru tilbreyting frá hefðbundnum kennsluaðferðum en nýti UT annars lítið í kennslu enn sem komið er. Ég hef verið að kíkja í kringum mig og hef ég rekist á forrit og hugmyndir t.d. á vefnum hennar Hörpu Hreinsdóttur, kennari.is, sem mig langar til að skoða betur. Á vefnum hennar Láru sá ég líka grunnskólamiðað forrit, sem heitir Log bog um hvernig hægt er að birta niðurstöður verkefna á vef.


Mig langar til þess að vinna með kennurum á yngri skólastigum á mínum vinnustað, að skipulagi upplýsingatækni í kennslu. Markviss kennsla í UT er á byrjunarstigi á þessum skólastigum og langar mig til að koma að mótun þess skipulags. Ekki eingöngu út frá Aðalnámskrá - upplýsinga- og tæknimennta heldur líka að skoða kennslufræðilega þætti, sem leggja ber áherslu á og gaman væri að vinna með.
Ég nefni Grunnskólann í Borgarnesi vegna fyrirlestrar Þórs Jóhannssonar á UT2003.
Sá fyrirlestur hafði mjög hvetjandi áhrif á mig. Ég veit ekki hversu margir skólar, sérstaklega úti á landi, hafa ráðið sérlegan kennsluráðgjafa í UT en mér finnst það bera vott um mikinn metnað að gera það og þeir fara skynsamlega að á Vesturlandi.