Kynning
Sorg hendir okkur flest á lífsleiðinni
og þarf ekki eingöngu að vera tengd missi við andlát
heldur getur missir einnig tengst alvarlegum veikindum, röskun
á fjölskyldutengslum, fötlun o.s.frv. Sjaldan, ef
nokkurn tímann, erum við tilbúin að taka við
sorginni, sem birtist flestum okkar að óvörum.
Lítið hefur verið fjallað um sorg í skólakerfinu
en sem betur fer er farið að leggja meiri áherslu á
þennan þátt í námi og farið er
að leggja drög að því hvernig skólar,
á markvissan hátt, geti brugðist við þegar
nemandi deyr, veikist eða slasast alvarlega og þegar nemandi
missir ástvin. Í nútímasamfélagi
lifum við í mikilli fjarlægð við dauðann,
ólíkt því sem áður var. Það
hefur valdið því að börn og unglingar alast
ekki upp við að dauðinn er eðlilegur hluti lífsins
og sorgin og sárar tilfinningar hennar eru heilbrigð viðbrögð
við sárum missi.
Þessi vefleiðangur á að vekja ykkur til umhugsunar
um sorg og sorgarferli, við hverju megi búast hjá
einstaklingi sem hefur misst og hvernig megi bæta samfélag
okkar með það í huga að styðja þá
sem eiga í erfiðleikum eftir missi.