Á þessum upplýsingavef verður safnað saman ýmsu efni sem gæti nýst ykkur til fræðslu, afþreyingar og samskipta.

Hugmyndin er líka að skapa hér vettvang sem myndi hjálpa ykkur að læra betur á Internetið með öllum þeim möguleikum sem það býður uppá. Þróun vefsins er síðan í ykkar höndum með því m.a. að koma á fót nefndum sem hefðu ákveðnum hlutverkum að gegna varðandi efni og uppfærslu vefsins.

Til þess að skapa hér lifandi og skemmtilegan vef sem áhugavert er að heimsækja þarf ég á aðstoð ykkar að halda og þigg allar góðar ábendingar. Ef þið lumið á skemmtilegum myndum sem þið mynduð vilja nota þá væri það vel þegið.

Sendið mér tölvupóst kristine@centrum.is




© Kristín Eyjólfsdóttir, þroskaþjálfi
Unnið í samvinnu við Kristínu Sigurjónsdóttur, þroskaþjálfa og hóp einstaklinga sem eru að taka sín fyrstu skref á Netið