Hrútaber

Aðalbláber

 

 

Hrútaberjalyng er algengt á láglendi um allt land. Það vex í frjósömum brekkum og bollum,einnig oft í skógarbotnum.

Plantan er með löngum, skriðulum renglum, sem eru bæði blöðóttar og hærðar.

Þessar renglur, sem stundum eru kallaðar skolla- eða tröllareipi, geta orðið allt að tveir metrar á lengd.

Blómstönglarnir eru uppréttir og með þyrnum. Blóm eru fá saman og eru bikarblöðin niðurbeygð en krónublöðin upprétt.

Hrútaberin þroskast fremur seint á sumrin, þau eru safamikil og örlítið súr á bragðið

Berin hafa töluvert verið nýtt til sultugerðar.

Dropar af hrútaberjum þykja styrkjandi bæði fyrir maga og hjarta. Einnig er talið að þeir lækni skyrbjúg.

Droparnir eru búnir til á eftirfarandi hátt: 100 gr. af steyttum berjum eru sett í 1/2 lítra af sterku brennivíni

og geymt á flösku í heitum sandi í þrá daga. Hið þunna er síðan síað frá og geymt.

Skammtastærð: Ein matskeið 3x á dag.