Í faðmi fjalla blárra
Sumarið 2006

Bjarki og Birna í blómagarðinum. Þar sem styttan er núna var gosbrunnur með mislitum ljósum á botninum

 

Í Blómagarðinum með Sundhöllina í baksýn

 


Hæstakaupstaðarhúsið. Það var nú ekki svona flott á mínum æskuárum


Þarna undir er mitt gamla leiksvæði. En fjaran náði alveg upp að húsinu lengst til vinsti.


Hérna sést uppfyllingin enn betur.


Birna og Bjarki standa þar sem móðir þeirra lék sér áður í fjörunni. Mánagata 9 í baksýn

 

 
Setið á tröppunum í Mánagötunni. Fyrstu æskuminningar mínar eru úr Mánagötunni. Við bjuggum á neðri hæðinni ( í 7 ár) en Gunna, Kalli og Tommi á þeirri efri.


Næsta hús við Mánagötu 9 var elliheimilið. Ekki slæmir nágrannar þar.

 


Við hina hlið Mánagötunnar stóð svo Aldan eitt af stærri húsum bæjarins.


Ská á móti okkur var sjálfur Hjálpræðisherinn í öllu sínu veldi. Þar var Hótel og íbúðir í útleigu og bjó margt skrautlegt fólkið þar.

 

Hérna eru Bjarki og Birna fyrir utan dyrnar að Hjálpræðishernum. Við systkinin fórum á samkomur hjá Hernum á hverjum sunnudegi og söfnuðum stjörnum í bleikar bækur.

 

Í næstu dyrum við Hjálpræðisherinn bjó Hedda, Eyjólfur og Guðrún. Stundum fórum við með mömmu í heimsókn til Heddu þar sem þær sátu í eldhúsinu og Hedda spáði í bolla fyrir mömmu. Í minningunni voru alltaf peningar í bollanum en hvort það sé rétt munað veit ég ekki. Eins man ég alltaf að Hedda og Eyjólfur áttu sitt hvort herbergið, það fannst mér alltaf eittvað undarlegt. Svo man ég alltaf "rennibrautina" sem var meðfram stiganum að ógleymdri útidyrahurðinni sem í æsku minni var sú fegursta sem ég hafði augum litið.

 

Bakatil við Mánagötuna voru þessir skúar. Það var nú búið í og er búið í þeim á fyrri myndinni og þar bjuggu vinir mömmu og pabba þau Lísa og Torfi

 

Rétt hjá okkur var svo Fjarðarstræti 33 þar bjuggu vinir okkar krakkanna. Jóa, Örn Óli, Jói og Fríða Birna Andrésarbörn


Tveir bakgarðar sem maður kom nú ekki oft í í æsku en voru samt í næsta nágreni

 


Þar sem Birna og Bjarki standa var heilsuverndarstöðin og þarna fór maður í ungbarnasprauturnar og það allt
Í hinum endanum var svo Vinnuver. Verslun með hannyrðir og allt mögulegt og þar endurnýjaði mamma líka alltaf miðana sína í happdrætti SÍBS.


Hér er svo baksvipurinn á sama húsi. Þessa hlið sá maður aldrei fyrr en á unglingsárum að Sigga Þrastar opnaði
hárgreiðslustofu uppi á lofti með inngangi þarna bakatil.


Þetta hús er í Mjallargötunni. Þegar ég var lítil minnir mig að Villi Matt og fjölskylda hafi búið þarna

Staðið á tröppunum á Apótekinu. Fyrstu minningarnar tengdar apótekinu eru þegar ég fór þangað smá stelpa labbandi úr Mánagötunni (fannst það vera mjög löng leið) til að kaupa gulan tyggjópakka og apótekaralakkrís.

 

Bjarki og Birna Fyrir framan Landsbankann.

FRAMHALD