Jarðarber

 

Aðalbláber

 

 

Villt jarðarber vaxa á Íslandi, ótrúlegt en satt!

Blöð jarðarberjaplöntunnar eru þrífingruð, gishærð á efra borði en silkihærð á því neðra.

Blómin sitja á aðhærðum leggjum og eru krónublöðin lengri en bikar- og utanbikarblöðin.

Jarðarberið sjálft er ekki eiginlegt ber, heldur er það myndað af blómbotninum,

sem þrútnar út.

 

 

Berin vaxa í þurrum og sólríkum grasbrekkum víða um land.

Venjulega eru þau fremur smá, en á sólríkum stöðum geta berin orðið nokkuð stór.

Þau eru eftirsótt af fuglum, sem stundum taka þau jafn óðum og þau þroskast.

Algengust eru berin á suður- og suðvesturlandi en sjaldgæfust á norðvesturlandi.

Plantan nær 5 - 15 cm hæð og blómgast í júní.