Rifsber

 

Aðalbláber

 

Rifs- og sólberjarunnar vaxa ekki villt á Íslandi en þá má víða finna í görðum

og á opnum svæðum í öllum landshlutum.

Rifsrunnar eru harðgerðari en sólber og komast betur af við óblíð kjör.

Rifs skilar samt ekki árvissri berjatekju nema þar sem náttúrufar er frekar gott.

Sólberin gera meiri hitakröfur en rifs og þurfa heldur lengri vaxtartíma.

Góður rifsberjarunni getur gefið af sér allt að 6 - 8 kg. af berjum þegar vel árar.

 

Rifsber Sólber

 

Bæði rifsber og sólber eru mjög góð í hlaup og mauk.

Þar sem berin vaxa á víðavangi um allt land geta flestir náð sér í eitthvert magn af berjum

og nýtt í sultugerð eða matargerð á ýmsa vegu.