Skollaber
|
![]() Skollaber vaxa innan um lyng og kjarr. Berin vaxa ætíð í breiðum, en oftast á fremur litlum svæðum. Þau eru víða að finna á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum og við utanverðan Eyjafjörð. Skollaber eru einnig að finna nyrst á Austfjörðum. Hvítu blöðin fjögur eru ummynduð laufblöð sem lykja um blómsveipinn. Blómin sjálf eru nær svört eða rauðsvört á litinn. Skollaber þroskast ekki fyrr en seint á haustin, oft í september. Oftast þroskast ekki nem 2-3 ber í hverjum
sveip.
|