Nám í San Diego |
|||||
|
Ég dvaldi í þrjá mánuði í San Diego, frá 1. feb. til 1. maí. 2001. Þar sótti ég tíma í San Diego State University (SDSU) hjá Próf. Bernie Dodge sem er þekktur fyrir að búið til kennsluforrit vefleiðangra. Ég sótti tíma í Advanced Teaching with Technology (EDTEC 570) og voru vefleiðangrar og undirbúningur þeirra aðal efni tímanna. Á ofangreindri síðu má sjá skipulag, verkefni, sem ég og aðrir gerðu, og annað sem að náminu sneri. Ég kom inn í 2. tíma, en fór þegar mánuður var eftir af kennslutímabilinu. Það kom þó ekki mikið að sök þar sem tímar í maí fóru aðallega í að gera lokaverkefnið. Tímar voru á mánudögum einu sinni í viku, 3 tímar í senn. Því dvaldi ég í SDSU eftir hádegi alla mánudaga fyrst í tölvuveri þar sem hópar unnu oft saman og síðan í tímum hjá BD. Machintosh tölvur eru ráðandi þarna og ekki er enn komið þráðlaust netsamband, en er þó væntanlegt á næsta ári. Því gat ég ekki notað PC fartölvuna mína þarna, en fékk inni í háskóla þar sem maðurinn minn hafði aðstöðu, University of San Diego (USD). Þar sat ég svo við tölvuna alla virka daga á bókasafninu með beintengingu á tölvunni. Meðan á dvölinni í San Diego stóð hélt ég jafnframt áfram fjarnámi í KHÍ, en er heim kom aftur var ég í fjarnámi í SDSU. Má því segja að ég hafi verið gott dæmi um hvernig dreifnám getur verið. Þetta var sérlega ánægjuleg dvöl í San Diego og mjög fróðlegt og gagnlegt að fá að víkka út sjóndeildarhringinn og kynnast hvað aðrir eru að gera í svipuðu námi. |
|||||
![]() |
|||||
![]() |
|||||
![]() |
|||||