1.
Ykkur verður skipt niður í hópa, 4
- 5 nemendur í hverjum hóp.
2.
Hópurinn skoðar vefslóðirnar og velur
að minnsta kosti 3 sögur úr vefefninu til
að lesa (eða láta lesa fyrir sig) og ræða
um. Munið eftir hver er góður, vondur og
hjálparinn.
3.
Þið veljið að minnsta kosti 3 sögubækur
úr listanum hér að ofan þið
lesið þær (eða látið lesa
fyrir ykkur) og ræðið um hver er góður,
vondur og hjálparinn. Munið að lesa bæði
um álfa og tröll.
4.
Bekkurinn velur eina mynd til að horfa á. (Greidd
verða atkvæði og meirihlutinn ræður.)
Umræðurnar fara fram í hópunum.
5.
Núna eigið þið að búa til
ykkar eigin álfa- og/eða tröllasögu.
Smellið hér
til að fá leiðbeiningar
um sögugerð. Þið skrifið söguna
á blað eða í tölvu (nemendur
fá hjálp við skrift eftir þörfum).
6.
Þegar þið eruð búin að semja
söguna eigið þið að búa til
myndasögu í KidPix um álfa- eða tröllasöguna
ykkar.
7.
Í KidPix er búið til Slideshow og talað
inn á myndirnar. Smellið hér
til að fá leiðbeiningar um Slideshow
og hvernig á að tala inn á KidPix.