Þegar ísa tekur að leysa af Bakkatjörn safnast þangað stór hópur af hávellum. Þær eru algengastar síðla apríl og í maí en fækkar verulega þegar kemur fram í júní. Hávellur sjást á tjörninni fram í nóvember. Hávella er óreglulegur varpfugl á Nesinu.
Karlfugl og kvenfugl eru ólík. Fuglinn skiptir oftar hamlitum en aðrar endur. Eggin eru 5-10. Hávella er staðfugl, en dvelur að vetri á sjó í flokkum.
 

Hávella að sumri (mynd 1) og að vetri (mynd 2)
Renndu músinni yfir myndina.