| Margæsir
eru fargestir á Íslandi vor og haust. Þær voru
algengar á Nesinu fram yfir 1930, en þá fækkaði
þessum fuglum á landinu. Margæs er minnsta gæsin
sem sést á Íslandi. Hún flýgur oftast
í óskipulegum hópum en einnig í oddaflugi.
Best er að sjá margæs á Nesinu á tímabilinu
frá miðjum apríl til miðs maí. Margæs
er umferðarfarfugl. Karlkyn og kvenkyn eru eins. |