Sanderla er fargestur hér á landi vor og haust. Þær sjást á Nesinu seinni hluta maí og fram í júníbyrjun. Þær koma aftur í júlílok og sjást fram í miðjan september en eru þá færri. Sanderla er svipuð lóuþræl. Hún hleypur til og frá í sandfjörum eltandi útfallið og sést oft í hópum. Hún er umferðarfarfugl. Karlkyn og kvenkyn eru eins.