Skógarþröstur hefur orðið algengari á Nesinu með aukinni byggð og trjárækt. Hann verpir aðallega í trjám í húsagörðum. Hann er að mestu farfugl en slæðingur af fuglum heldur til í þéttbýli allan veturinn. Hann er algengur í apríl og síðan aftur í september til október. Eggin eru 4-6. Sennilega verpa um 5 pör á Nesinu en hugsanlega eru þau fleiri. Karlfugl og kvenfugl eru eins.