Seltjarnarnes státar af mjög fjölbreyttu fuglalífi. Vitað er um 106 fuglategundir sem hafa sést þar. Að staðaldri verpa 25 tegundir á Nesinu.

Markið þessa vefs er að safna saman á einn stað upplýsingum um fugla á Seltjarnarnesi þannig að nemendur og kennarar eigi auðveldara með að kynna sér þá fugla sem þar eru.

Textinn er stuttur þannig að yngri nemendur geta lesið hann eða hlustað á hann, en bent er á að mun nákvæmari lýsingar er að finna í þeim bókum sem stuðst er við (sjá heimildalista).
Kennurum er heimilt að nota Vefinn og verkefnið á þann hátt sem hentar í kennslu og breyta og bæta við verkefnið að vild.
Bent skal á að Internet Explorer hentar betur fyrir þennan Vef þar sem bæði er hægt að lesa og hlusta á textann, en í Netscape er aðeins hægt að hlusta þegar smellt er á "hlusta á texta" takkann.

Vefur þessi er unninn sem hluti af verkefnum í framhaldsdeild K.H.Í. í tölvu og upplýsingatækni.

Júlí 2000, Margrét Sigurgeirsdóttir. masig@ismennt.is

 

Heimildalisti
Texti:



Seltjarnarnes göngukort, Seltjarnarnesi [1999], Umhverfisnefnd Seltjarnarness
Jóhann Óli Hilmarsson: Íslenskur fuglavísir, Reykjavík 1999, Iðunn
Kristbjörn Egilsson og fleiri: Náttúrufar á Seltjarnarnesi, Seltj.nesi 1997, Seltj.bær
Stefán Aðalsteinsson og fleiri: Fuglarnir okkar, Reykjavík 1985, Bjallan

Þorsteinn Einarsson: Fuglahandbókin, Reykjavík 1987, Örn og Örlygur

Myndir:

Myndirnar á Vefnum koma af Internetinu, úr bókum og að láni frá Seltjarnarnesbæ.