Ættartala Ólafar S. Björnsdóttur
     
      Móðurættin mín í báða leggi kemur frá Aðalvík á Hornströndum. Þar hafa um aldir haldist sterk ættartengsl og fólki í lófa lagið að rekja sig langt aftur þannig að segja má að ættfræðiáhuginn hafi verið lagður inn í uppvextinum og haldist síðan.
     


Lífshlaup Sigríðar


Móðuramma Sigríður Jóna Þorbergsdóttir
Fædd í Efri-Miðvík í Aðalvík 2. desember 1899
Látin í Reykjavík 20. mars 1893





Móðurafi Ólafur Helgi Hjálmarsson
Fæddur í Stakkadal, Aðalvík 14. nóvember 1895
Látinn í Reykjavík 17. júní 1974

       
      Í föðurættina er amma mín ættuð frá Barðaströnd og Breiðafirðinum, nánar tiltekið Svefneyjarætt en afi minn er frá Vatnsnesi, V-Húnavatnssýslu.
     
Föðuramma Guðrún Magnúsdóttir, kennari
Fædd að Klukkufelli, Reykhólasveit 15. sept. 1886
Látin í Reykjavík 2. júlí 1963


Föðurafi Jóhannes Teitsson, húsasmíðameistari
Fæddur að Skarði, Vatnsnesi, V-Hún. 2. júní 1893
Látinn í Reykjavík 1. nóvember 1977

         
      Foreldrar mínir hófu búskap í Reykjavík árið 1943 og eignuðust sex börn. Þau skildu árið 1964.
     
Móðir mín Oddný Ólafsdóttir
Fædd að Látrum í Aðalvík 26. júní 1921
húsmóðir og kjólameistari í Reykjavík

Faðir minn Björn Jóhannesson
Fæddur í Flatey, Breiðafirði 19. október 1919
kaupmaður í Reykjavík
       
 

 

 

Ég hef skráð í Espolín forritið frá Friðrik Skúlasyni í u.þ.b. 10 ár og gagnasafnið mitt telur nú um 45 þús. einstaklinga. Þar hef ég kappkostað að skrá mínar ættir sem og ættir eiginmannsins en hann er fæddur í Vestmannaeyjum en ættaður í móðurætt úr Landeyjum og Mýrdal en frá Nyrðri-Ströndum í föðurætt.

Hér er krækja í framættir mínar

 
 
 
 
 
   
     
    Heimildir:
Kjartan T. Ólafsson o.fl. 1995. Frá Aðalvík og Ameríku. Afkomendur Ólafs Helga og Sigríðar Jónu.