Fjölvar (Macro)– Tækjaslár – Hnappar – í Word ritvinnslu

Fjölvar og tækjaslár

Vinna með fjölva (Macro)

Hnöppum bætt inn á tækjaslá

Ný tækjaslá

Ný tækjaslá búin til

Fjölvi (Macro)

Fjölvi (Macro) fyrir íslenskar „gæsalappir“

 

Nýr fjölvi settur á tækjaslá

Fjölva eytt

Breyta nafni eða útliti á fjölva

Tækjalsá – Taka af og bæta við hnöppum

Breyta nafni á tækjaslá

Fjölvum bætt á tækjaslá

Heimild. 16

 

Vinna með fjölva (Macro)                                      

Notendur geta aðlagað tækjaslár að sínum þörfum ef þess þarf. Það getur komið sér vel að hafa aðgerðarhnappa fyrir skipanir aðgengilega á tækjaslá í stað þess að opna e.t.v. nokkrar valmyndir til að nálgast þær.

Hnöppum bætt inn á tækjaslá                           

Bætið hnöppum fyrir „Supercript – Uppskrift“ og „Subscript – Niðurskrift“ inn á Formatting-tækjaslána en á þeirri tækjaslá er leturgerð, leturstærð o.þ.h. valið. Dæmi um niðurskrift og uppskrift: H2O og m3.
Farið í ViewToolbarsCustomize eða smellið með hægri mús í gráa auða svæðið hægra megin við tækja­slárnar.

Valmynd opnast – Hafið Commands-spjaldið virkt.
Veljið úr glugganum Categories: – Format.
Hægra megin birtist í Commands: listi yfir alla aðgerðarhnappa sem eru í Format-valmyndinni.
Skrunið niður með pílunni hægra megin og finnið táknið fyrir Superscript  úr listanum og smellið í það.
Smellið á hnappinn með músinni og haldið henni niðri. Plús-tákn birtist sem þýðir að hnappurinn hefur verið gripinn.
Dragið hnappinn (án þess að sleppa músinni) upp í tækjaslána.
Þar birtist svart strik ásamt plús-tákninu sem þýðir að hægt sé að bæta hnappnum við á tækja­slána.
Sleppið músinni og happ­urinn er kominn inn.
Endurtakið fyrir Subscript-hnappinn og smellið síðan á Close.

 

 

 

 

    

 

 

 

 

 

 

 

Ný tækjaslá                                                       

Ef verið er að vinna í sérstökum verkefnum getur verið gott að búa til tækjaslá með þeim hnöppum sem viðkomandi er að nota.

 

Ný tækjaslá búin til                                            

Farið í ViewToolbarsCustomize eða smellið með hægri mús í gráa auða svæðið hægra megin við tækjaslárnar.

Valmynd opnast – Hafið Toolbars-spjaldið virkt og smellið í New

Gluggi fyrir New Toolbar birtist.
Skrifið nafn ykkar í Toolbar name:

Látið Make toolbar available to:vera óbreytt
Smellið á – OK fyrir New Toolbar valmynd og
síðan– Close fyrir Customize valmynd

Á skjánum birtis tækjaslá sem hefur að geyma nafn ykkar,
en enga hnappa.

Tækjasláin sem birtist ætti að líta út svipað og þessi hér à .

 

 

            

 

 

Fjölvi (Macro)                                                   

Fjölvar geta verið til ýmissa hluta nytsamlegir. Eins og nafnið ber með sér er hann safn aðgerða sem eru framkvæmdar, vistaðar og keyrðar þegar þeirra er þörf. Til að hægt sé að framkvæma þessar aðgerðir er fjölvanum gefið nafn og síðan tekinn upp (record). Með þessu móti er hægt að keyra hann eftir þörfum annað hvort með skipun úr lyklaborði eða aðgerðarhnappi af tækjaslá.

Fjölvi fyrir íslenskar „gæsalappir“                     

Farið í ToolsMacroRecord New Macro.

Valmynd fyrir Record New Macro birtist.

Gefið fjölvanum nafn (verður að vera í einu orði) og skrifið í Macro name: gluggann gaesa1.
Í valmyndinni er boðið upp á annars vegar að tengja fjölvann við flýti­hnappa á lyklaborði eða sem hnapp í tækjaslá.
Ekki nota séríslenska stafi

Við ætlum að skilgreina flýtihnappa á lyklaborðinu og smell­um því á Keyboard.
Valmynd fyrir Customize Key­board birtist.
Commands: glugginn sýnir nafn fjölvans og sniðmátið sem hann er tengdur.
Bendillinn á að vera staðsettur í Press new shortcut key:
Haldið niðri Ctrl-hnappi og ýtið á ð-hnapp.
Í glugganum birtist Ctrl+Ð og fyrir neðan Currently assigned to: stendur [unassigned] sem þýðir að þessir flýtihnappar eru ekki fráteknir.
Smellið á Assign – Close og þá birtist á skjánum valmynd fyrir Stop Macro Recording ásamt táknmynd af snældu (casettu). Þessi valmynd gefur til kynna að nú sé hægt að fara að taka upp fjölvann þ.e. allar aðgerðir sem nú eru framkvæmdar eru teknar upp.

Haldið niðri vinstri Alt-hnappi og sláið inn úr talnaborði til hægri 0132 og táknið fyrir gæsalappir niðri birtist á skjánum smellið í  hnappinn á Stop Macro Recording-slánni og upptaka stöðvast.

Fjölvi er geymdur í því sniðmátsskjali (Templates) sem er virkt þegar hann er búinn til. Hér er virkt Normal.dot sem er sjálfgefna sniðmátsskjalið sem fylgir Word-ritvinnslu­forritinu.
Öll skjöl sem síðan eru byggð á því erfa fjölvann.

Framkvæmið fjölva-skipunina með því að ýta á hnappana (Ctrl+ð) á lyklaborpinu og athugið hvort táknið birtist ekki á skjánum hjá ykkur.

Endurtakið þessar aðgerðir til að búa til gæsalappir uppi  .
Gefið fjölvanum heitið gaesa2 og setjið á flýtilyklana Ctrl+Shift og ð (Assign – Close).
Haldið niðri vinstri Alt-hnappi og sláið inn 0147 fyrir o.s.frv.

 

     

     

                          

 

Nýr fjölvi settur á tækjaslá                               

Farið í ToolsCustomize og valmynd fyrir Customize birtist.
Hafið Commands-spjaldið virkt og veljið Macros úr Categories: listanum.

Í Commands: glugganum birtast fjölvarnir sem búnir voru til.
Smellið í gaesa1 fjölvann og dragið yfir í tækjaslána ykkar.
Endurtakið fyrir gaesa2 fjölvann.
(Sjá leið­beiningar í „Hnöppum bætt á tækjaslá“.)

Tæjasláin ætti nú að líta svona út:

 

                     

                       

 

 

Fjölva eytt                                                         

Ef eyða á fjölva er farið í:

Gluggi fyrir Macros birtist.

Veljið fjölvann sem á að eyða og smellið á Delete – OK.



 

 

Breyta nafni eða útliti á fjölva                           

1.    View – Toolbars– Customize eða Tools – Customize.
Hafið Commands-spjaldið virkt.

2.   Veljið Macros úr Categories: listanum.

3.   Farið í tækjaslána með nafni ykkar og smellið með hægri mús á nafnið á fjölvanum gaesa1.

4.   Fellivalmynd opnast. Smellið í Name: reitinn og
skrifið Gæsa-niðri .

5.   Endurtakið aðgerðirnar fyrir gaesa2 fjölvann en
látið hann heita Gæsa-uppi.

Í þessari valmynd (Tools – Customize) er einnig hægt að breyta
táknum á hnöppum, teikna eigin myndir á hnappa o.fl.

Hér ætlum við að setja lýsandi tákn á hnappana fyrir fjölvana og veljum Change Button Image
Valgluggi með táknum birtist – Veljið pílurnar.

Ath.:    Það verður að vera hakað við Image and Text
                þegar þessi aðgerð er framkvæmd.

Nú ætti tækjasláin að líta svona út à

 

 

 

 

Tækjalsá – Taka af og bæta við hnöppum           

Verkefni: Fjarlægjið  hnappinn úr Formatting tækjaslánni.

1.   Farið í ViewToolbarsCustomize eða ToolsCustomize.
     
Valmynd fyrir Customize opnast.
2.  Smellið með músinni á  í tækja­slánni. Svartur rammi kemur í
      kringum hnappinn.
3.  Dragið happinn út úr tækjaslánni. Þegar þetta tákn
      kemur má sleppa músinni og hnappurinn er farinn.

Verkefni: Setjið  hnappinn aftur inn á tækjaslána.

Verkefni: Setjið inn hnappa fyrir neðanmálsgrein (Footnote), hásteflinga (Small Caps) og stærðfræðiritill (Equation Editor). Skrifið viðeigandi heiti hjá hnöppunum.
Styðjist við leiðbeiningar um „Bæta hnöppum á tæjaslá“ og „Breyta nafni og útliti á fjölva“.
Tækjasláin ætti að líta svona út að því loknu.


      Small Caps finnst undir Categories:
Format
en Footnote og Equation Editor undir finnast undir Format Categories: Insert.

      Einnig er hægt að vela All Commands og fletta þar í gegn.

      Bætið við aðgerðum/hnöppum eftir því sem ykkur þykir gott að hafa tilbúnar á tækja­slánni ykkar t.d. Apply Heading o.s.frv.

Breyta nafni á tækjaslá                                     

1.    Dragið tækjaslána út í gluggann þannig að borðinn á henni sé virkur.

      Til að hægt sé að draga tækjaslá út á skjáborð þarf að fara í vinstri brún hennar og setja músina yfir þetta tákn .
Fjórátta píla birtist  
Mús er haldið niðri og tækjasláin er dregin til.

2.    Farið í ToolsCustomize eða hægri smellið á bláa borðann á tækjaslánni. Valmynd fyrir Customize opnast.

3.    Hafið Toolbars-spjaldið virkt og veljið nafn tækjasláarinnar úr Toolbars: listanum. Ath.: Hafið hakið virkt.

Gluggi fyrir Rename Toolbars birtist og nýtt heiti á tækja­slánni er skrifað þar.

 

 

 

Verkefni – Fjölvum bætt á tækjaslá                 

Búið til fjölva sem að býr til haus og fót skv. eftirfarandi:

1.         Setjið upptöku í gang (Tools, Macro, Record New Macro… og gefið fjölvanum nafnið hausfótur) – ok

2.         Veljið View – Header and Footer.

3.         Setjið nafnið ykka og hóp við vinstri spássíu–ýtið tvisvar á dálkhnapp og setjið sjálfvirkt heiti skjals
við hægri spássíu – setjið línu undir hausinn.

4.        Farið í fótinn.

5.         Setjið dagsetning við vinstri spássíu– ýtið tvisvar á dálkhnapp og setja sjálfvirkt blaðsíðunúmer
við hægri spássíu. – Setjið línu yfir fót. – Close

6.         Slökkvið á upptöku með því að smella á svartan kassa á viðeigandi tækjaslá.

            Setjið fjölvann upp á tækjaslána, breytið heitinu og setjið lýsandi tákn á hnappinn.
            Prófið síðan að keyra fjölvann með því að velja fjölvann fyrir haus/fót.

Heimild:                                                                               

UTN 1036 – Kennslubók með verkefnum. 2002. Jóhanna Geirsdóttir og Ólöf S. Björnsdóttir

Til baka á verkefnasíðu