Enska – English


Danska – Danish

Áhugasvið Sérsvið Reynsla Tenglar
         

Áhugasvið

Efst í skjal

Erfitt er að tiltaka eitt sérstakt áhugasvið þegar fjallað er um upplýsingatækni nútímans. Eins og staðan er í dag þá er margt sem heillar mig og ber helst að nefna þau áhrif er ég varð fyrir þegar ég ásamt tveimur öðrum tókum fyrir hugtakið „Telematics“ eða „Fróðskipti“ eins og það hefur verið þýtt yfir á íslensku.

David Thornburg, höfundur bókarinnar „The New Basics, Education and the Future of Work in the Telematic Age“ og framkvæmdastjóri fyrir Thornburg Center, fræðaseturs í upplýsingatækni , hefur lengi haft mikinn áhuga á þessari samþættu tækni í tengslum við menntun með sérstaka áherslu á að nemendur nýti sér hana á skapandi og hagnýtan hátt. Samkvæmt tölvuorðasafni íslenskrar málstöðvar merkir enska orðið „Telematics“ fróðskipti og er sett saman úr orðunum "telecommunication" og "informatics". Þessi samþætta tækni er nokkurs konar samþætting fjarskipta- og upplýsingatækni og m.a. það hefur gert fjarnám okkar hér við Framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands mögulegt og með sanni má kalla þessa tíma „tölvuöld“.

Til að hafa full not af tölvuþekkingarbyltingunni þarf hver og einn að þróa með sér áhrifaríka sam- og tjáskiptahæfni svo hægt sé að tileinka sér að fullu hina ýmsu miðla og vera fær um samhæfða notkun þeirra. Það kallar síðan á símenntun einstaklinganna og að skólar geri sér grein fyrir að þeir eru væntanlegir viðskiptavinir, en David Thornburg segir: „Stöðugt nám (lifelong learning) er eina tryggingin fyrir því að halda sjón á þá staðreynd að líftími upplýsinga er mjög stuttur“. Í ræðu sinni „Frá akademíu til upplýsingasamfélags“ sem Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, flutti á Háskólaþingi árið 2000, telur hann nauðsynlegt að fylla ekki höfuð nemenda af þekkingu sem þeir þurfi ef til vill aldrei á að halda eða jafnvel einungis í tiltekinn tíma. Greinilegur samhljómur er milli þeirra tveggja, OECD skýrslunnar frá 2002 og orða Voltaires sem sagði: „Menntun er það sem eftir stendur þegar við höfum gleymt öllu því sem við lærðum.“

   

Sérsvið

Efst í skjal

Eitt af sérsviðum okkar er kennsla UT-greina á viðskiptasviði en þar búum við nemendur undir atvinnulífið og frekara nám með markvissri þjálfun í UT. Undanfarin ár höfum við aðallega stuðst við fjölgreindarkenningar Howards Gardners og lausnarleitarnám Dewey (PBL) við lausnir á raunhæfum verkefnum. Markmið okkar með því hefur verið fjölþætt m.a. að nemendur verði ekki einungis færir um að leysa tiltekin verkefni heldur verði einnig tölvu- og upplýsingalæsir, enda er það vaxandi krafa atvinnulífsins að fólk búi yfir þessari hæfni. Spurningin er hversu langt skólakerfið er komið á þann veg í að undirbúa nemendur undir þessa nýju stöðu á atvinnumarkaðnum. Í grein David Thornburg's „Diminishing Astonishment“ segir hann frá nauðsyn þess að breyta hugsun gagnvart tækni í menntun, mæta tækninýjungum, taka þeim sem sjálfsögðum hlut og nýta þær í hinu daglega lífi.

   

Reynsla

 

Efst í skjal

Fyrstu kynni mín af tölvum voru þegar ég hóf starfsnám í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg árið 1981. Þá var nýbúið að leggja öllum blýsetningarvélum og allur texti skrifaður á þess tíma tölvur sem voru frumstæðar textavélar. Þróunin á þessum árum var mjög hröð og þegar ég hætti þar 1983 voru vélaranar orðnar það fullkomnar að hægt var að lesa inn texta frá öðrum vélum sem og brjóta um heilu ritin. Sú reynsla sem ég öðlaðist á þessum árum hefur verið ómetanleg í því sem á eftir hefur fylgt.

Árið 1987 hóf ég kennslu í unglingadeild í Breiðholtsskóla. Kennslugreinar voru í byrjun: vélritun og bókfærsla, en frá árinu 1989 bættist við tölvukennsla sem fól í sér kennslu í forritun (basic), ritvinnslu og töflureikni. Árið 1992 var ákveðið að tölvuvæða grunnskóla Reykjavíkur. Af hálfu Breiðholtsskóla fór ég í þjálfun og var netstjóri Breiðholtsskóla frá 1992 til 1996 er ég hætti þar kennslu. Samhliða kennslu í Breiðholtsskóla hóf ég kennslu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti haustið 1994. Í FB var starfssvið mitt alhliða UT-kennsla. Árið 1995 tók ég við rekstri tölvukerfis FB og sá um það til janúar 2000.

Árið 1999 fól Menntamálaráðuneytið FB að sjá um að setja á stofn og tilraunakenna fimmtu bóknámsbrautina, UT-braut (Upplýsinga- og tæknimenntabraut). Ég skipulagði Upplýsinga- og samksiptafræðisviðið með stuðningi tveggja samkennara. Til að hafa betri yfirsýn yfir UT-þætti fór ég í nám hjá Margmiðlunarskóla Prenttæknistofnunar veturinn 1998–1999.

Samhliða kennslu hef einnig kennt mikið á námskeiðum fyrir kennara bæði hjá Endurmenntunarstofnun HÍ, við Kvöldskóla Kópavogs, Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar, Borgarververkfæðingi og fleiri fyrirtækjum sem eru með fullorðinsfræðslu á sínum snærum.

Deildarstjóri í tölvu- og fjölmiðladeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti frá hausti 1998–2000, deildarstjóri tölvudeildarinnar frá hausti 2000. Á vegum FB hef ég gegnt ýmsum stjórnunarstörfum t.d. fagstjórn og í Tölvunefnd 1996–2001. Í skorarstjórn KHÍ 2000–2001. Í stjórn Félags Upplýsingatæknikennara frá árinu 1996, formaður árið 2000–01. Á þeirra vegum hef ég skipulagt og haft umsjón með námskeiðum sem það hefur staðið fyrir og einnig hef ég kennt á mörgum þeirra. Hef setið í ýmsum nefndum fyrir hönd fagfélagsins. Í stjórn kennarafélags Breiðholtsskóla 1994–1995. Í stjórn Átthagafélags Sléttuhrepps frá 2001. Í stjórn Ættfræðifélagsins frá 2003.

Veturinn 2002–2003 stunda ég framhaldsnám í „Uppeldis- og menntunarfræðum“ við Framhaldsdeild KHÍ og ég geri mér von um að það geti veitt mér betri innsýn í mitt starf sem kennari og auk þess stuðlað að því að ég öðlist betri færni í ýmsum þáttum tengdum mats- og kennslufræðum og stjórnun samþætt upplýsingatækni. Í námsnefnd Upplýsinga- og tænibrautar Framhaldsdeildar KHÍ 2002–2003.

Sjá nánar um náms- og starfsferil

Námsefnisgerð – Útgefin rit: 1996–2003

   

Tenglar

Efst í skjal  Association for Supervision and Curriculum Development (ASCD): http://www.ascd.org/readingroom/books/thornburg2002_toc.html

Diminishing Astonishment – Grein Davids Thornburg:
http://www.pbs.org/teachersource/thornburg/thornburg0402.shtm

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
http://fb.is

Fræðasetur Davids Thornburg
http://www.tcpd.org/index.html

Háskólaþing 2000:
http://menntamalaraduneyti.is/mrn/mrn.nsf/pages/Upplysingar-Frettir-Frettatilkynningar_2000-haskolathing-19-februar

Heimasíða Howard Gardners
http://www.pz.harvard.edu/PIs/HG.htm

Lausnarleitarnám – Þórunn Óskarsdóttir
http://www.ismennt.is/not/thorunn/throun/aetlun1.htm

Orðabók íslenskrar málstöðvar
http://www.ismal.hi.is/ob/birta/

Problem Based Learning – Byggt á John Dewey
http://www.ascd.org/publications/books/1997delisle/1997delisletoc.html

Ræða Runólfs Ágústssonar á Háskólaþingi 2002
http://menntamalaraduneyti.is/mrn/mrn.nsf/Files/RAfraakademiu/$file/RAfraakademiu.pdf

Skýrsla OECD 2002. Understanding the Brain Towards a New Learning Science. Paris, Organisation for Economic Co-operation and Development.
http://www1.oecd.org/publications/e-book/9102021E.PDF

Verzlunarskóli Íslands
http://www.verslo.is

Viðskiptaháskólinn á Bifröst
http://www.bifrost.is/

     

Smellið á hnapp til að komast á

  Aðalsíða námskeiðs