Vinnuferli

Áætlað er að verkefnið standi yfir í eina og hálfa viku eða sem samsvarar 9 kennslustundum.

Nemendum er skipt í hópa, 2–3 í hverjum hóp.

Nemendur kynna sér viðfangsefnið og lesa greinar sem tilteknar eru í Björgum.

Nemendur velja sér markhóp og miða efnistök í samræmi við valið:

  Einblöðung og veggspjald fyrir grunnskólanema – Aldur markhóps 6–15 ára 
  Einblöðung og veggspjald fyrir framhaldsskólanema – Aldur markhóps 16–22ára
  Einblöðung og veggspjald fyrir aldraða – Aldur markhóps 67 ára og eldri


Einblöðungurinn á að vera í tví- eða þríbroti af A4-stærð og texti báðum megin á blaðinu.
Nemendur mega styðjast við stílsnið úr Word/Publisher.

Gæta þarf samræmis við útlit og val og fylgja þarf reglum um umbrot, dálkagrindur o.fl. sem er að finna í kennsluhefti nemenda, Útlit og umbrot.

Nemendur taka saman efni úr lesgreinum sem hæfa í fræðsluritið (einblöðunginn) og útbúa jafnframt veggspjald með helstu áhersluatriðunum úr fræðsluritinu.

Frjálst val er á myndefni en athugið að það hæfi aldri markhópsins.

Hver hópur vinnur glærusýningu um verkefnið og útskýrir við hvað var stuðst í efnistökum, s.s. leturval, umbrot o.þ.h. Tvær síðustu kennslustundirnar verða notaðar í kynningarnar.
Einnig stilla nemendur upp veggspjöldunum og dreifa bæklingum til hinna hópanna fyrir lokamat.

 

    © Sólveig Friðriksdóttir 2003
© Ólöf S. Björnsdóttir 2003