Bútasaumsvefurinn
Listamenn
Carol Doak
Carol er þekktust fyrir að hafa þróað tækni við að sníða og sauma agnarsmá bútasaumsteppi.
Nú síðast með tækni pappírssniða. Gott yfirlit er yfir bækur Carol og námskeið.
Caryl Bryer Fallert
Margar myndir af bútasaumsteppum Caryl og einnig sýnt hvernig
hún vinnur þau. Pöntunarþjónusta fyrir handlituð efni.
David Walker
Heimasíða Davids er listagallery þar kynnir hann sín verk og annarra. Yfirlit er yfir hvað er efst á baugi í bútasaumsheiminum.
Debbie Mumm
Debbie er hönnuður sem vinnur efni, snið og ýmsar vörur í sveitastíl. Þessi síða er sölusíða fyrir munstur og fleira.
Doreen Speckmann
Doreen var einn virtasti bútasaumskennari í Bandaríkjunum.
Hún lést í september 1999 á ferðalagi á Írlandi.
Hún er höfundur bóka og heldur námskeið þar sem kennt er að breyta hefðbundnum munstrum og skapa ný. Einnig var hún þekkt fyrir farastjórn sína í bútasaumsferðalögum
bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.
Jinny Beyer
Heimasíða Jinny kynnir efni og snið sem hún hefur hannað. Jinny er einn vinsælasti kennari og hönnuður í bútasaum. Á þeim tíma sem lítið var um litaval í efnum varð Jinny fyrst til að hanna efni í ákveðnu litrófi og sérstök efni til að nota í leggingar á teppi. Reglulega eru ný snið til frjálsrar notkunar.
John Flynn
John er þekktastur fyrir að hanna sérstaka ramma til að létta verkið við að stinga teppi. Hann rekur fyrirtæki sem selur þessa ramma, semur bækur og heldur námskeið.
Judy Martin
Judy hefur samið ótalmargar bækur. Hún vinnur mikið með "scrapquilts". Hún skrifaði mikið fyrir Quilters Newsletter Magazine áður fyrr en stofnaði svo sína eigin bókaútgáfu.
Kaffe Fassett
Kaffe er listamaður sem lifir fyrir liti og form. Myndir þar sem hann notar bútasaumteppi
sem bakgrunn leiddu hann inn í heim bútasaumsins.
Hann saumar þó lítið sjálfur heldur hannar efni
og snið til að nota í bútasaum. Nú eru kominn frá honum áprentuð efni sem eru spennandi
viðbót við það sem til er, því litavalið er mjög óvenjulegt.
Til er bók sem hann vann í samstarfi við vinkonu sína um bútasaum,
Glorious Patchwork. Þekktastur er
Kaffe þó fyrir útsaums- og prjónamunstur sín
Listamannasíðan
Listi yfir heimasíður ýmissa listamanna.
Marsha McCloskey
Marsha var með þeim fyrstu að hagnýta sér og þróa sniðtækni með "rotary"hníf. Hún hefur samið ótal bækur og leggur áherslu á fjaðraðar stjörnur.
Nancy Crow
Nancy er fyrst og fremst listamaður. Hún sækir innblástur í verk Van Gogh. Nancy leggur áherslu á að nota sem flest og mismunandi efni í hvert teppi. Nancy hannar einnig efni. Hér er stutt kynning og yfirlit yfir bækur, námskeið og fyrirlestra en engar myndir.