Ríkharður H. Friðriksson er fæddur árið 1960 í Vestmannaeyjum. Hann lærði tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík, Manhattan School of Music, New York; Accademia Chigiana, Siena; og Konunglega Tónlistarháskólann í Haag. Kennarar hans voru Atli Heimir Sveinsson, Þorkell Sigurbjörnsson, Elias Tanenbaum, Franco Donatoni og Clarence Barlow. Einnig skartar hann prófskírteinum í sagnfræði frá Háskóla Íslands og klassískum gítarleik frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Hann nam einnig við hollensku Hljóðrannsóknarstofnunina (Instituut voor Sonologie) í Haag auk þess að sækja námskeið í tölvutónsmíðum við Sweelinck tónlistarháskólann í Amsterdam og sumarskólanum í Darmstadt.

Eftir hann liggja bæði hljóðfæra- og tölvutónsmíðar sem hafa verið fluttar á Íslandi, Norðurlöndunum, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Austurríki, Hollandi, Sviss, Kína og Singapore, auk þess sem þeim hefur verið útvarpað í fleiri löndum í Evrópu. Hann hefur fengið Fulbright ferðastyrk til náms í Bandaríkjunum, styrk frá Vísindasjóði Íslands til rannsókna á íslenskri tónlistarsögu og styrk frá NOMUS (Norræna tónlistarnefndin) vegna samnorræns tölvutónlistarverkefnis.

Nú um stundir býr hann í Reykjavík, þar sem hann skiptir tíma sínum á milli tónlistarsögukennsku og tölvutónsmíða.

Ríkharður gerir raftónlist sem fer tvær grundvallarleiðir; annað hvort gerir hann hreina víðóma afspilunartónlist þar sem unnið er með náttúruhljóð og hreyfingu þeirra í rými, eða hann iðkar lifandi spuna með rafgítar og vinnur hljóð hans áfram með tölvutækni. Í seinni geiranum kemur hann annað hvort fram einn eða með sveitinni Icelandic Sound Company.

Tóndæmi er hægt að heyra á SoundCloud svæði Ríkharðs.