Rikhardur H. Fridriksson: Camilliana (2002)

Verkið varð til í náinni samvinnu við Camillu Söderberg sem lagði til mikið af grunnefniviðnum. Hljóð blokkflautunnar er leitt inn í tölvu og setur þar af stað ýmis ferli, sum fyrirfram tilbúin en önnur matreidd á staðnum í rauntíma. Mikill meirihluti hljóðvinnslunnar er gerður með síbreytilegum taflínum (delay-lines). Þetta er semsagt eins konar ofvirk bergmálsmaskína sem oftar en ekki fer þannig með hljóðið að uppruninn er orðinn ansi langsóttur. Hlustendur eru þó fullvissaðir um að öll hljóðin sem heyrast, komu upphaflega úr kontrabassablokkflautu.

A short excerpt from Camilliana (1:58 min - 1,8 MB)