|
30-jan-03 |
||
| Hér skrifar Rannveig! | ||
| Rannveig
Vigfúsdóttir
Síðast uppfærð 31.jan.2003 senda póst til Rannveigar |
Hér
kemur örlítil kynning á mér en af miklu er af
taka. Hvar skal svo byrja? Ég heiti Rannveig og er Vigfúsdóttir.
Loksins er ég að ná þeim aldri sem mér fannst
nafnið eiga við þegar ég var barn og vildi miklu frekar
vera úti að leika heldur en að sinna verkefnum heimasætunnar.
Mér var nefnilega sagt að nafnið þýddi “húsmóðir”.
Hræðilegt í eyru stelpu sem átti þrjá
eldri bræður og meiri hluti nágrannanna voru strákar.
Við stelpurnar taldar óttalegar strákastelpur, í
fótbolta, bílaleik og bófahasar helst uppi í
klettum eða inni á annarra lóðum jafnvel að næla
sér í rabarbara sem ætlaður var í sultu hjá
myndalegri húsmóður. Í dag held ég því
hinsvegar fram að Rannveig þýði heimabrugg samanber
rannur er hús og veigar drykkur og húsdrykkur hlýtur
að vera heimabrugg. Reyndar stendur í bókinni hans Karls
Sigurbjörnssonar, Hvað á barnið að heita að
Rannveig sé styrkur hússins. Ég er fæddur og uppalinn Hafnfirðingur (með stóru H-i ) eins og best lætur. Þannig er að ég er fædd hér á elliheimilinu Sólvangi því mamma var orðinn svo gömul þegar hún átti mig að vísu segja mér eldri menn og heimildir að Sólvangur hafi áður hýst fæðingadeild fyrir hafnfirðinga eða allt fram á áttunda áratuginn og mamma er ennþá til þó ég sé einhversstaðar á milli fertugs og ...... Ég er gift kona í dag, minn ektamaki heitir Eyjólfur Rúnar Sigurðsson og við eigum tvö börn eða öllu heldur unglinga. Vigfús Almar 14 ára og Ingu Maríu 12 ára. Við búum í Norðurbænum í Hafnarfirði og kunnum mjög vel við okkur. Í dag starfa ég sem grunnskólakennari við Setbergsskóla í Hafnarfirði en ég útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands vorið 1983 og er því kennsluferill minn orðinn ansi langur (og strangur) enda segja fyrrum nemendur “ertu ENN að kenna!!!” þegar þeir hitta mig. Var þá ekki tími til kominn að fara að huga að einhverju framhaldi. Allavega sótti ég um framhaldsnám við KHÍ og er á brautinni Kennslufræði og námsefnisgerð. Kúrsinn sem ég er í núna heitir “Nám og kennsla á netinu”. Þessa heimasíðu er ég einmitt að vinna í námi mínu. |