Nám og starfsferill

* í smíðum *

Salvör Gissurardóttir

 

Menntun og starfsreynsla

 

Menntun – Próf

1990 M.A. próf í "Instructional Design and Technology" (gerð fræðsluefnis og tækni í námi og kennslu) frá University of Iowa, Iowa City, USA með áherslusvið tölvunotkun í skólastarfi.

  1. Kandidatspróf í viðskiptafræðum (cand.oecon) frá Háskóla Íslands, þjóðhagskjarni, stjórnsýslukjörsvið.

1981 Nám til kennsluréttinda frá félagsvísindadeild Háskóla Íslands (20 einingar).

1974 Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík, eðlisfræðideild.

1970 Landspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík.

 

Menntun - Styttri námsþættir

 

1998 Norrænt diploma nám í fullorðinsfræðslu, hóf í október 1998, lýk 2000.

1996 Lauk einu fimm eininga námskeiði í ritlist frá Háskóla Íslands.

  1. Lauk tveimur námskeiðum, samtals tíu einingum í norsku frá Háskóla Íslands.

1992 "Certificate in Online Education and Training". Lauk sextán viku hlutanámi frá Institute of Education og Open University í Bretlandi í skipulagningu fjarkennslunámskeiða sem nota tölvusamskipti.

 

Starfsreynsla

1999 - Sérfræðingur í málefnum upplýsingasamfélagsins hjá forsætisráðuneytinu, verkefnisstjórn um upplýsingasamfélag

1991 - 99 Lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Kennaraháskóla Íslands (í leyfi frá störfum)

1990 Framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í eina önn eftir framhaldsnám í USA.

1986-88 Námstjóri í tölvufræðum í menntamálaráðuneytinu, framhaldsskóladeild. Verksvið tölvukennsla í grunnskólum og framhaldsskólum, námskrárvinna, ráðgjöf um búnað og kennsluhætti, skipulagning á endurmenntunarnámskeiðum fyrir tölvukennara og að tryggja útgáfu námsbóka og kennsluforrita til tölvustuddrar kennslu.

    1. Framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, kennsla á tölvubraut og deildarstjóri tölvufræða. Skipulagning á tölvufræðslu þegar hún verður í fyrsta skipti skyldunámsgrein í skólanum.
    1. Stundakennari við Tækniskóla Íslands, tölvukennsla í útgerðartækni og rekstrardeild, kennsla í pascalforritun í rafmagns- og véltæknibrautum.

1981-83 Stundakennari í bókfærslu við öldungadeild Menntaskólans í Hamrahlíð.

    1. Framhaldskólakennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Kennslugeinar tölvufræði og viðskiptagreinar.

Alþjóðasamskipti til 1999

 

Evrópuverkefni

1999 Ráðgjafi við mat á umsóknum í Leonardóáætlun Evrópubandalagsins

1998 Í evrópskri dómnefnd vegna margmiðlunarverðlauna Europrix 1998

  1. Ráðgjafi við mat á umsóknum í Leonardóáætlun Evrópubandalagsins

1996 Ráðgjafi við mat á umsóknum í Leonardóáætlun Evrópubandalagsins

1996 Tæknilegur ráðgjafi frá 1996 fyrir Leonardóverkefnið AlterEco sem er undir íslenskri stjórn. ( http://www.ismennt.is/vefir/altereco)

1995 Í undirbúningsnefnd vegna umsóknar evrópskra fjarkennsluaðila um veraldarvefsverkefnið WINDER í 4. rammaáætlun 1995 (umsóknin hlaut ekki brautargengi það ár en hefur síðan verið styrkt en án íslenskrar þátttöku)

  1. Sá um útgáfu á og söfnun efnis í evrópska raftímaritið ANDREA um fjarkennslu í Evrópu 1994-1995 en yfir fimm hundruð fjarkennsluaðilar í Evrópu gerðust áskrifendur að þessu nettímariti.

 

Dvöl erlendis og þátttaka í alþjóðlegum ráðstefnum undanfarin ár

1999 Þátttaka í norrænni ráðstefnu embættismanna um IT Politik í Reykjavík

1999 Þátttaka í norrænni ráðstefnu um menningarnet í Reykjavík

1999 Þátttaka í norrænu rannsóknarnámskeiði og rannsóknarneti "Information Technology and Gender - Comparative and Cross-disciplinary Perspectives" í Tallinn, Eistlandi

1998 Hóf hálfsárs diplóma nám á háskólastigi í fullorðinsfræðslu á vegum Nordens Folkliga Akademi NFA, námið er samstarfsverkefni fimm háskólastofnana á Norðurlöndum, námið er fjarnám í hlutastarfi með fimm staðbundnum lotum.

1997 Dvaldi í mánuð við Háskólann í Lundi í Svíþjóð og við Kennaraháskólann í Malmö þar sem ég kynnti mér stefnumótun og framkvæmd á stefnu háskóla þar í upplýsingatæknimálum.

1997 Sótti alþjóðlega ráðstefna ICTE í Ósló í upplýsingatækni í skólastarfi, var þar höfundur að tveim erindum, öðru um tölvuþjálfun fatlaðra barna og hinu (meðhöfundur Anna Kristjánsdóttir) um upplýsingatækni og kennaranám.

  1. Sótti sjöttu alþjóðlega ráðstefnuna um WWW í Santa Clara í USA.

1996 Sótti norræna ráðstefnu um kvennafræði "Frö og Frukter" í Ósló

  1. Sótti tvö vikunámskeið á vegum Evrópuráðsins 1995 og 1997 í menningararfleifð Evrópu "European Heritage" í Donaueschingen

1995 Sótti alþjóðlegu bókastefnuna í Frankfurt og dvaldi í viku við háskóla þar.

1995 Tveggja mánaða kynnisdvöl við ýmsa bandaríska háskóla m.a. University of Virginia í rannsóknarorlofi þar sem ég kynnti mér stöðu upplýsingatækni í bandarískum háskólum.

1994 Sótti ráðstefnu AECT í kennslutækni í Nashville, USA, flutti erindi sem "International Leader" um stöðu upplýsingatæknimála á Íslandi

  1. Sótti NATO ASI námstefnu í "Supporting Learning in Computer Environments" í tíu daga í Edinborg í Skotlandi.

1994 Dvaldi í þrjá mánuði við NKI fjarkennslustofnunina í Noregi á NorFa styrk sem "Visiting Scholar". Kynnti mér fjarkennslu og tæknimiðla í norskum skólum.

1993 Flutti erindi á alþjóðlegri ráðstefnu Teleteaching í Osló um námstækni við tölvusamskipti.

Útgefið efni, kennsluforrit, greinar, vefir, skýrslur

Ýmis þróunarverkefni frá 1996-1998 sem ég hef unnið á vef

1998 Upplýsingasamfélagið

http://www.ismennt.is/vefir/ari/samfelag Vefur um hvernig ný tækni hefur áhrif á atvinnu, skóla og tómstundastarf. Vefurinn er safn greina sem ég hef tekið saman sjálf eða þýtt auk tenginga í efni opinberra aðila og annarra.

1998 Nám og kennsla á Netinu

http://www.ismennt.is/vefir/ari/nam Vefur sniðinn fyrir þá sem útbúa efni til birtingar á vef, kennsluefni í vefsíðugerð og tölvusamskiptum, umfjöllun um nýja tæknimiðla í námi og kennslu, sýnishorn af námsumhverfi og kennsluefni á vef.

1998 Vefleiðangrar

http://www.ismennt.is/vefir/ari/banki Verkefnabanki þar sem nemendur fá verkefni og eiga að safna saman þekkingu og umbreyta til að leysa verkefnið.

1996 - 98 Jólavefurinn

http://jol.ismennt.is Vefur um íslenska alþýðumenningu, vísur, frásagnir, myndir og umfjöllun um íslenskar vættir sem tengjast jólum. Frásagnir af jólahaldi fyrri tíma.

1997 – 98 Páskavefurinn

http://www.ismennt.is/vefir/ari/paskar Vefur um páskasiði og páskaföndur.

1998 Álfar og huldufólk

http://www.ismennt.is/vefir/ari/alfar Vefur um íslenska alþýðumenningu, sögur, kvæði og fróðleikur um álfa og um hvernig álfaminni lifa í nútímanum.

 

Ritaskrá (annað en efni á vef og námsefni fyrir nemendur í KHÍ)

1998 Skýrsla um upplýsingatækniátak í KHÍ (meðhöfundur)

  1. Skýrsla um aðbúnað og þjálfun starfsmanna KHÍ í upplýsingatæknimálum

1996 Skýrsla um stefnumótun í upplýsingatækni við KHÍ (meðhöfundur)

1995 Tölvuþjálfun fatlaðra barna (skýrsla í handriti)

1995 Tölvuleikir (grein í Nýjum menntamálum 13. árg.;1.tbl., 1995, s.20-23)

1994 Educational Technology in Iceland, AECT conf. and International Bulletin

  1. Læreruddannelse og ny teknologi, Nytt om Data i Skolan, no. 1. (grein)

1994 Tölvukönnun 1994 – Tölvunotkun starfsmanna KHÍ

1993 Generative Learning Strategies in Computer Mediated Communications(grein)

1991 Tölvunotkun í Kennaraháskóla Íslands (bæklingur v. ráðstefnu sumar 91)

1990 Teaching Common Errors in Control Structures in Pascal (óbirt grein)

1990 Ocean Ecology – Live in the Open Ocean (kennsluforrit)

1989 Computer Strip Tutor (kennsluforrit, meðhöfundur)

1987 Tölvunám í framhaldsskólum (bæklingur)

1986 dBase gagnasafnskerfi (kennslubók)

1984 Multiplan töflureiknir (kennslubók)

 

Samstarfsverkefni og nefndastörf um upplýsingatækni

Ýmis þróunarverkefni þar sem lærlingar, starfandi kennarar, kennaranemar og utanaðkomandi starfsfólk hafa unnið að verkefnum sem ég hef skipulagt að hluta eða öllu leyti og/eða haft umsjón með.

  1. Vefleiðangrar. Þróunarverkefni unnið með nemendum mínum. Þetta er kennsluverkefnabanki, verkefnamiðað námsumhverfi þar sem vefurinn er notaður sem ein af mörgum uppsprettum þekkingar og markmiðið er að safna saman þekkingu og umbreyta henni á einhvern hátt.

1998 Kennsluforrit í stærðfræði. Hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að ráða einn nema sumarlangt til smíði kennsluforrits í stærðfræði.

  1. Tölvusamskiptaverkefni barna. Vann ásamt Láru Stefánsdóttur að því að koma upp íslenskum tölvusamskiptum fyrir börn, ég vann við að setja upp íslenskar vefsíður fyrir Kidlink verkefnið. Verkefnið var styrkt af Barnamenningarsjóði.

1997 Þróunarverkefni í Varmahlíðarskóla í Skagafirði 1997-8.

1996 Vefsíðugerð. Hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að ráða tvo nema til að vinna að vefsíðugerð og smíði námsumhverfis á vef. Nemarnir eru núna báðir útskrifaðir og starfa hjá menntanetinu sem vefstjóri og þjónustustjóri.

  1. Tölvuþjálfun fatlaðra barna. Hlaut styrk frá atvinnumálanefnd Reykjavíkurborgar til að ráða starfsmann af atvinnuleysisskrá vegna verkefnisins sem hófst 1994.

1994 Tölvuþjálfun fatlaðra barna. Hlaut styrk úr sjóði félagsmálaráðuneytis til atvinnumála kvenna og vegna verkefnisins Tölvuþjálfun fatlaðra barna en það var samstarfsverkefni mitt og Tölvumiðstöðvar fatlaðra og í því störfuðu fimm konur á mínum vegum í ýmsum grunnskólum og leikskólum

  1. Tölvuleikir. Þróunarverkefni unnið með nemendum mínum en þeir gerðu könnun 1994 meðal nemenda í grunnskólum um tölvuleiki.

1993 Tölvukennsla á Vestfjörðum. Þróunarverkefni fjögurra grunnskóla á Vestfjörðum: Bolungarvík, Ísafjörður, Súðavík og Holt. Ráðgjöf og tölvukennsla og kynning fyrir kennara, skólastjórnendur og skólanefndarmenn.

  1. Tölvur í samkennslu. Þróunarverkefni þar sem skólastjórar og kennarar í fimm sveitaskólum á Íslandi sem höfðu samkennslufyrirkomulag fengu lánaða tölvu og forrit til kennslu og hlutu nauðsynlega þjálfun. Verkefnið var styrkt af Appleumboðinu.

 

Nefndastörf tengd upplýsingatækni undanfarin tvö ár

1999 Formaður stjórnar Menningarnets Íslands

1998 í starfshópi KHÍ um upplýsingatækniátak 1998.

1998 Í fjarkennslunefnd KHÍ frá 1998.

  1. Í námskrárvinnuhóp um nýsköpun og hagnýtingu þekkingar á námsviði upplýsinga- og tæknimennta á vegum menntamálaráðuneytis.

1997 Í starfshópi KHÍ um aðbúnað og þjálfun starfsmanna í upplýsingatæknimálum.

1996 í starfshópi KHÍ um stefnumótun í upplýsingatækni 1996-1997

1996 Í starfshóp um kennsluforrit á vegum Námsgagnastofnunar

 

Störf að félagsmálum

Ég sat í stjórn Hagþenkis, félags kennslugagna og fræðiritahöfunda 1991-1993 og í skólanefnd Heimilisiðnaðarskólans 1996-1997. Þá hef ég starfað með listakonum í áhugahóp um atvinnumál - Rótin Textílhandverk 1995-97 en það verkefni hlaut ýmsa styrki og hratt á stað átaki í hönnun á textílhandverki. Einnig hef ég gegnt trúnaðarstörfum og tekið virkan þátt í starfsemi kvennasamtaka, fyrst í stjórnmálastarfi en síðustu ár aðallega með þátttöku í félagasamtökum og gegnum þátttöku í kvennafræðiverkefnum. Um nokkurra ára skeið frá 1980 tók ég þátt í starfi Norræna sumarháskólans og var í stjórn Íslandsdeildar skólans.