Texti frá Sveini Kjartanssyni, Námsgagnastofnun
uppsetning á vef: Salvör Gissurardóttir, KHÍ

PC forrit frá Námsgagnastofnun




		Heiti, námsgrein og aldursstig

 	
		ABC123 		Móðurmál/sérkennsla (frá 8 ára)
		Aflfræði...	Eðlisfræði (15 ára­framh.sk.)
		Alice		Enska (frá 12 ára)
		Bréfdúfa í ...	Samfélagsfræði (10­15 ára)
		Brúsaþrautir	Þrautalausnir (frá 8 ára)
		Dagur í búðinni	Stærðfræði (frá 10 ára)
		Dýraslóðir	Þrautalausnir (frá 8 ára)
		Ég		Samfélagsfræði (frá 6 ára)
		Feluleikur..	Stærðfræði (frá 11 ára)
		Fjarvídd	Myndmennt (frá 11 ára)
		Form		Sérkennsla (frá 5 ára)
		Frá A til Ö	Móðurmál/Sérkennsla (frá 6 ára)
		Geislavirkni	Eðlisfræði (frá 15 ára)
		Graf og P-graf	Stærðfræði (14 ára­ framh.sk.)
		Grafkassi	Stærðfræði (16 ára­framh.sk.)
		Grafsveigir	Stærðfræði (15 ára­framh.sk.)
		Heimshornaflakk	Samfélagsfræði (frá 14 ára)
		Hermilíkön	Stærðfræði (12­15 ára)
		Hreindýrabúið	Stærðfræði, náttúrufr. (13­15 ára)
		Hugvaki		Móðurmál / ritun (10­16)
		Húrra fyrir Hermínu	Stærðfræði (frá 6 ára)
		Jatsí		Stærðfræði (fyrir alla)
		Klukkan		Sérkennsla (frá 6 ára)
		Lestu og...	Móðurmál/Sérkennsla (frá 6 ára)
		Lestrarglímur	Móðurmál/Serkennsla (frá 8 ára)
		Levels		Enska (fyrir alla)
		Margföldun	Stærðfræði (frá 8 ára)
		Marteinn mús	Móðurmál (frá 7 ára)
		Matarlyst	Næringarfræði (frá 15 ára)
		Matthildur	Móðurmál/Sérkennsla (frá 6 ára)
		Meistaramúsin	Stærðfræði (6­10 ára
		Minnisleikur	Íslenska (frá 5 ára)
		Myndasaga	Móðurmál (10 ára og eldri)
		Myndir123	Myndmennt (frá 5 ára)
		Myndir og orð	Móðurmál/Sérkennsla (frá 6 ára)
		Myndrún		Móðurmál/Sérkennsla (frá 6 ára)
		Orðamyndir	Móðurmal/sérkennsla (frá 6 ára)
		Prósentur	Stærðfræði (12 ára­frhsk.)
		Púsluspil	Þrautalausnir (frá 6 ára)
		Rakstraumsrásir Eðlisfræði (14­16 ára)
		Ráðgátur I	Stærðfræði (frá 11 ára)
		Ráðgátur II	Þrautalausnir (frá 11 ára)
		Reiknihellirinn	Stærðfræði (frá 7 ára)
		Rigning í Osló	Móðurmál - Vinnubók með lestrarbók
		Satt		Stærðfræði (frá 8 ára)
		Skriftís	Skrifletur (fyrir kennara til forskriftargjafar)
		Slönguspilið	Stærðfræði (8­15 ára)
		Stjörnumerkin 	Stjörnufræði (13 ára­framh.sk.)
		Sögusmiðjan	Móðurmál/Ritun (frá 8 ára)
		Trú, von og kærleikur	Sérkennsla (eldri nemendur)
		Túlkur		Íslenska, erlend mál (frá 8 ára)
		Töfraferningurinn	Stærðfræði (10­15 ára)
		Tölur og samlagning	Stærðfræði (frá þriggja ára)
		Tölvuflóra	Líffræði (11­15 ára)
		Umsagnir	Móðurmál (frá 10 ára)
		Vasa skipið	Náttúrufræði (14 ára­frhsk.)
		Verksmiðjan	Stærðfræði (frá 8 ára)
		Veröldin mín	Móðurmál/Sérkennsla (frá 5 ára)
		Vogarstöngin	Eðlisfræði (frá 10 ára)
		Vörubíllinn	Sérkennsla (frá 6 ára)
		Þjálfi		Þjálfun á lyklaborð (fyrir alla)
		Þrekþjálfun í margföldun	Stærðfræði (frá 8 ára)
		Þrír í röð	Stærðfræði (frá 8 ára)
		Þrívíddarhúsið	Myndmennt/Stærðfræði (frá 10 ára)


ABC123 Höf.: Gävle Data Pedagogiska Centrum Þýðing forrits og handbókar: Hildigunnur Halldórsdóttir Raða á táknum á ýmsa vegu, t.d. rugluðum stöfum í orði: i i e t v h ð hveitið. Forritið kemur með slembiröðun á stöfunum og þeim er raðað í rétta röð með músinni. Eigi notandinn í erfiðleikum með að finna rétta lausn má biðja um vísbendingu eða fá að sjá lausnina. Hægt er að búa til orð, litlar tölur, stórar tölur, raða í stafrófsröð o.s.frv. Nokkrir tilbúnir orðalistar fylgja með forritinu til að sýna hvaða möguleika forritið hefur en auðvelt er að breyta þeim eða búa til nýja eftir óskum hvers og eins. Handbókin er 7 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur: Windows 3.0 eða nýrra; mús 094260
AFLFRÆÐI ­ KRAFTUR OG HREYFING Höf.: Seppo Hyyti Þýðing forrits og handbókar: Birgir Edwald og Þorvaldur Ólafsson. Forritið hentar efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Fjallað er um orsakir þess að hlutur hreyfist eða þær leikreglur³ sem gilda um hreyfinguna. Mikil áhersla er lögð á grafíska heildun þegar finna skal atlag krafts. Sundurliðun vektorstærða er einnig mikilvæg til að öðlast skilning á beitingu lögmálanna um kraft og hreyfingu. Forritið vísar veginn að markmiðunum meðal annars með því að teikna kraftvektor með átakspunkt í þeim hlut sem hann verkar á. Handbókin er 8 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS , EGA-eða VGA-skjár, mús, 400 Kb minni, 1,2 Mb á disklingi 093730

ALICE Höf.: Ingar Holm, Rolf Palmberg og Elisabeth Bang-Nielsen Kerfi: DOS Litaskjár og mús Ævintýraleikur til notkunar í enskukennslu. Forritið styðst lauslega við ævintýrið um Lísu í Undralandi. Handbók er á íslensku. 092730

BRÉFDÚFA Í EVRÓPU Esko Vörgen, Markku Heinonen. Kerfi: MS-DOS 3.3 EGA-skjár (256Kb) og mús. 640Kb vinnsluminni. Námsgrein: Samfélagsfræði. Efninu fylgir forrit og handbók. Hentar einkum 5.-10. bekk. Megintilgangur þessa forrits er að nemendur grannskoði Evrópukort og helstu staðarheiti á því. Ef nemandi hefur fyrir hugskotssjónum skýra mynd af Evrópu er mun auðveldara fyrir hann að fást við aðrar námsgreinar, eins og sögu, trúarbragðafræði, stjórnmál o.fl. Fyrir PC-tölvur og 3 1/2" og 5 1/4" disklinga. Útg. 1993 09374

BRÚSAÞRAUTIR Höf.: Thomas C. O'Brian Kerfi: DOS Litaskjár Forritið bætir úr brýnni þörf fyrir námsefni um þrautalausnir. Það hefur að geyma stærðfræðilegar þautir, allt frá mjög einföldum verkefnum til flókinna viðfangsefna þar sem nemendur fá tækifæri til að prófa eigin lausnaleiðir. Og það eru oft margar leiðir að markinu. Þrautunum er skipað í fjóra misþunga flokka þannig að allir grunnskóla nemendur frá 8 ára aldri geta fundið verkefni við sitt hæfi. 093290

DAGUR Í BÚÐINNI Kerfi: DOS Litaskjár og mús Höf.: Birgir Edwald Markmið með notkun forritsins er að kenna metrakerfið og þjálfa nemendur í að breyta milli eininga þess. Baksviðið er lítil búð og er nemendinn í hlutverki afgreiðslumannsins. 093490

DÝRASLÓÐIR Höf.: Thomas O¹Brian, Kristen Fraser Kerfi: DOS Litaskjár Eitt meginmarkmiði með leikjunum er að hvetja börn til að afla upplýsinga, flokka þær og nota. Í leikjunum nota nemendur því upplýsingar til að draga ályktanir á rökvísan hátt. Hæfileikinn að draga ályktanir er einn af mikilvægustu þáttum stærðfræðilegrar hugsunar. Þessi þáttur hefur gjarnan verið afskiptur í skólastarfinu. Forritinu er ætlað að bæta hér úr brýnni þörf. Leikirnir er misþungir, allt frá afar einföldum til mjög flókinna leikja. Þeir henta því nemendum á öllum aldursstigum. 092910

ÉG Höf.: Kirsten Vej Petersen, Leif Gredsted og Stig Dall Þýðing forrits: Hildigunnur Halldórsdóttir Þýðing handbókar: Hanna Kristín Stefánsdóttir Forritið Ég er einkar vel til þess fallið að láta nemendur skrá ýmsar upplýsingar um sjálfa sig og bekkjarfélaga sína. Hægt er að líta á forritið sem gagnagrunn með upplýsingum um nemendur í bekknum. Hver nemandi getur gengið að eigin upplýsingum í gagnagrunninum og ­ búið til sjálfsmynd, sem er gróf teikning af andlitinu (andlitsfall, hárgreiðsla, háralitur o.fl.), á teikniverkstæðinu, ­ slegið inn mælitölur fyrir hæð, þyngd o.fl. á mælingarverkstæðinu, ­ teiknað ættartré sitt með upplýsingum um systkini, foreldra, afa og ömmur á ættfræðiverkstæðinu, ­ skrifað póstkort eða stuttan texta á ritunarverkstæðinu, ­ tilgreint tómstundastörf sín eða áhugamál á tómstundaverkstæðinu. Verkefnin er hægt að nota til að sýna hvernig tölvan getur meðhöndlað myndrit og texta og framkvæmt snögga útreikninga. Nemendur munu einnig komast að raun um að hægt er að birta myndrit, tölur og texta í einföldum gagnagrunni. Einnig má afrita og safna saman upplýsingum um einstaka nemendur sem geta þannig orðið hluti af stærra gagnasafni. Tæknilegar kröfur: ­ PC-tölva með VGA-litaskjá og mús Forritið MOUSE.COM eða sambærilegur músarrekill verður að vera virkt áður en forritið Ég er ræst. 09442

FELULEIKUR Í HNITAKERFINU Höfundur: Birgir Þórarinsson og Sveinn Arngrímsson. Höfundur handbókar: Ragnheiður Jónsdóttir. Kerfi: Microsoft Windows 3.0 Mús. Námsgrein: Stærðfræði. Hentar frá 6. bekk. Markmið forritsins er að þjálfa nemendur í að tilgreina hnit punkta, æfa þá í notkun Pýþagorasarreglu, þjálfa þá í að leysa þrautir og draga ályktanir. Forritið er sett saman úr fjórum misþungum leikjum. Allir æfa þeir hnitakerfið og að auki æfa þrír þeir þyngri þrautalausnir. Í öllum leikjunum er markmiðið að finna dýr í hnitakerfinu. Fyrir PC-tölvur og 3 1/2" diskling. Útg. 1993. 09370

FJARVÍDD Höf.: Coster Sterup og Bjarne Belhage. Kerfi: DOS Litaskjár Námsgrein: Myndmennt. Hentar einkum 5.b. ­ framhaldsskóla. Forritið er hugsað sem hjálpartæki til fjarvíddarteikninga og við að öðlast þekkingu á fjarvíddarlögmálinu. Síðan má fylgja notkun forritsins eftir með því að sýna hvernig lögmál þetta er notað í myndlist. Forritið má tengja teikniforriti þannig að nemendur geta unnið áfram með teikninguna eftir að fjarvíddarforritið hefur hjálpað þeim að leysa verkefni tengd fjarvíddarkennslu. Útg. 1991 09231

FORM Höf.: Jens Tollefsen Þýðing handbókar: Sigrún Jóhannsdóttir Formum er ætlað að þjálfa þrjá þætti : örva viðbrögð ­ þekkja liti ­ þekkja form Notandinn byggir upp mynd með því að para saman rétt form eða liti. Hægt er að velja hversu marga hluti á að hafa til að byggja upp myndina. Umbunin felst í því að myndin birtist að lokum sem hreyfimynd. Einnig er hægt að láta aðeins eina aðgerð kalla fram myndina. Forritið hentar vel leikskólabörnum, forskólabörnum og til sérkennslu. Hægt ar að nota forritið með mismunandi búnaði, s.s. lyklaborði, rofum, mús, og snertiskjá. Forritið getur því nýst hreyfihömluðum. Tæknilegar kröfur: ­ PC-tölvur, 386 eða stærri ­ 3 Mb diskpláss ­ VGA skjákort ­ hljóðkort er æskilegt DOS-forrit 09446

FRÁ A TIL Ö Höfundar: John Berntzen og Marit Bjørklund o. fl. Kerfi: PC- eða MS-DOS, útg. 3.30. EGA eða VGA- skjár. Námsgrein: Sérkennsla / Móðurmál. Hentar frá 6 ára aldri. Kennsluforritið Frá A til Ö var upphaflega samið handa fullorðnu fólki með lesblindu. Margir hafa síðan bent á að forritið henti engu síður til notkunar við lestrar- og skriftarkennslu í 1. bekk grunnskóla. Æfingarnar þróast frá því að skrifa einstaka bókstafi í orði og til þess að skrifa heilar setningar. Auk þess kann forritið að reynast hentugt handa útlendingum sem eru að læra íslensku. Fyrir PC- tölvur og 3 1/2" og 5 1/4" disklinga. Útg. 1993 09360

GEISLAVIRKNI Höfundar: Lil Engström, Göran Nydahl og Rigmor Lundin. Þýðing forrits og handbókar: Þorvaldur Ólafsson. Hentar efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Geislavirkni er hermiforrit sem leitast við að sýna ýmsa eiginleika og áhrif geisla frá geislaefnum. Eitt af markmiðunum með forritinu er því að líkja eftir tilraunum á þessu sviði. Eftir kjarnorkuslysið í Tsjernobyl kom fram fjöldi nýrra orða og hugtaka í fjölmiðlum. Margir áttu erfitt með að skilja eða höfðu óljósa hugmyndum orð eins og bekerel, geislanemi, geislastyrkur, geislaskammtur, gammageislar, skaðleg og óskaðleg geislun. Annað markmið meðforritinu er því að gefa þessum orðum ákveðna merkingu og leggja þar með málefnalegan skerf til mikilvægrar umræðu um geislavirkni. Handbókin er 31 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS, EGA- eða VGA-skjár, mús 09424

GRAF OG P-GRAF Höf.: Viggo Sadolin. Kerfi: DOS Litaskjár eða svart-hvítur skjár Forrit sem gefur kost á að teikna gröf falla. Hægt er að slá inn jöfnur fallanna á venjulegu stærðfræðitáknmáli. Mjög einfalt í notkun. Verkefnablöð fylgja. 092590

GRAFKASSI Höf.: Ivar Byrkjeland Kerfi: MS Windows Forritinu má líkja við verkfæri sem hægt er að beita til að kanna föll í stærðfræði. Hægt er að teikna föll, lesa fallgildi af grafi, teikna afleiðu, skoða snertla o.fl. Að auki má skoða talnagögn á myndrænan hátt. 093300

GRAFSVEIGIR Höfundar: Jörgen H. Christiansen og Anders Buch Handbók: Anders Buch og Orfeus Nemendabók: Jörgen H. Christiansen og Orfeus Þýðing forrits, handbókar og nemendabókar: Hildigunnur Halldórsdóttir Einkum fyrir nemendur í 9.­10. bekk grunnskóla og nemendur í framhaldsskóla. Forritið hentar vel þegar verið er að kenna línur, fleygboga og breiðboga. Handbókin er 21 bls. Útg. 1993. Tæknilegar kröfur: MS-DOS, litaskjár, mús 093560

HEIMSHORNAFLAKK Höfundar: Lena Holmlund og Lars Friman Þýðing forrits og handbókar: Hanna Kristín Stefánsdóttir Forritið hentar notendum á unglingsaldri og eldri. Markmiðið með forritinu er að auðvelda notandanum að skilja bauganet jarðar og notkun þess, skiptingu jarðar í tímabelti og hlutverk þeirra, svo og ástæður þess að árstíðir eru mismunandi á norður- og suðurhveli jarðar. Með forritinu er hægt að rannsaka og prófa sig áfram til að komast að niðurstöðu. Notandinn kynnist fjölmörgum örnefnum og þjálfast í að finna ákveðna staði á korti. Spurningar sem varpað er fram henta ágætlega til umræðu í skólum, t.d. í litlum nemendahópum. Forritinu fylgir hefti með rannsóknarverkefnum. Handbókin er 28 bls. Útg. 1994 Tæknilegar kröfur:PC-tölva, MS-DOS, EGA- eða VGA-skjár, 512 Kb vinnsluminni, mús 093540

HERMILÍKÖN Höfundar: Kennarar við Danmarks Lærerhøjskóle Þýðing: Kolbrún Friðriksdóttir Kerfi: DOS. Námsgrein: Stærðfræði. Kennsluforrit, nemendabók og kennsluleiðbeiningar. Henta einkum nemendum í 7.­10. bekk. Hér er um nokkur kennsluforrit að ræða þar sem unnið er með líkön um ævilengd Íslendinga, mannfjöldaspá, umferðina, biðraðir í verslunum, innflúensufaraldur í bekkjardeild og spilið rúllettu. Í nemendabókinni er lýsing og kennsla í notkun kennsluforritanna, auk fjölda verkefna. Í kennsluleiðbeiningunum er fjallað um hvert forrit sérstaklega, greint frá markmiðum og nauðsynlegum undirstöðuatriðum og frekari umfjöllun um einstök verkefni nemendabókarinnar. Auk þess er fjallað um notkun hermilíkana almennt í þjóðfélaginu. Samstarfsverkefni Námsgagnastofnunar og IBM á Íslandi. 087960

HREINDÝRABÚIÐ Jon Meløy, Arnulf Soleng og Sverre Hjelleseth Þýðing forrits og handbókar: Gylfi Pálsson Hentar einkum fyrir efri bekki grunnskóla og framhaldsskóla. Forritið veitir notandanum tækifæri til að spreyta sig sem hreindýrabóndi með eigin hreindýrahjörð. Bóndinn verður að taka ákvarðanir eins og hver annar alvörubóndi. Svona hermilíkan gefur mun nánari upplýsingar um hreindýrarækt en önnur tiltæk námsgögn. Hægt er að nota forritið í fleiri en einni námsgrein eftir samhengi og verkefnum. Efnið getur tengt ólíkar námsgreinar, s.s. náttúrufræði, vistfræði, samfélagsfræði og stærðfræði (töflur, súlurit o.fl.). Handbókin er 40 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur:PC-tölva með a.m.k. 510 Kb lausu vinnsluminni, MS-DOS , EGA- eða VGA-skjár, mús 093860

Hugvaki Höfundar: Ivar Minken Þýðing:forrits : Hildigunnur Halldórsdóttir; Þýðing handbókar: Jón O. Edwald Forritið getur komið að gagni í mörgum kennslugreinum. Upphaflega var það hannað til að þjálfa nemendur sem reyndist örðugt að tjá sig skriflega og skipulega. Í núverandi mynd hentar forritið vel við alla málþjálfun, reyndar alls staðar þar sem hægt er að þjálfa með því að byggja orð og setningar á myndum. Forritið höfðar fyrst og fremst til fullorðinna og barna sem reynist örðugt að tjá sig skriflega. Annars geta öll börn í 5. bekk og ofar í grunnskóla og í framhaldsskóla haft gagn af forritinu. Forritið á að hjálpa notandanum að ­auka leikni í að semja og lesa texta ­skilja og fara með orð og hugtök ­auka sjálfstraust við að semja texta. Forritið er norskt að uppruna og er eitt af þeim forritum sem dreift er á Norðurlöndunum á vegum tölvunefndar Norrænu ráðherranefndarinnar til dreifingar í skólum. Tæknilegar kröfur: PC-tölvur sem hafa Microsoft Windows 3.1 eða nýrra. Ekki er hægt að keyra forritið án þess að hafa mús. Mjög æskilegt er að hafa VGA-litaskjá.

HÚRRA FYRIR HERMÍNU
T. R. Tulloch. Þýðing forrits: Birgir Edwald. Þýðing handbókar: Jón O. Edwald. Forrit þetta hentar einkum nemendum frá 6 ára aldri. Um er að ræða misþungar æfingar í samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu og hægt er að stilla aðferðir, þyngd og tímamæli á verkefnum. Auðvelt og fljótlegt er að laga forritið að getu hvers og eins. Forritið er með hreyfimyndum og hægt er hafa með hljóð og tónlist. Niðurstöður verkefna eru skráðar og hægt er að prenta út árangur. Handbókin er 20 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS 3,2, 530K RAM, harður diskur og 1,7 MB laus Æskileg jaðartæki: Sound Blaster eða sambærilegt hljóðkort, prentari 094040
JATSÍ
Höf.: Ingibjörg Pétursdóttir Kerfi: Ms. Windows Á seinni árum eru leikir og spil orðin eðlilegur hluti af stærðfræðinámi. Í skólastarfi er hægt að nota Jatsí með börnum sem eru um það bil að tileinka sér talnaskilning og grundvallarfærni í samlagningu og margföldun, þ.e.a.s. 7 til 11 ára börnum. Einnig hentar það vel í sérkennslu. Spilið þjálfar einnig rökhugsun og gefur innsýn í líkindareikning. 093170
KLUKKAN
Höf.: Petter Korseth Þýðing: Lára Sveinsdóttir og Hildigunnur Halldórsdóttir Forritið er þjálfunarforrit fyrir nemendur sem eru að læra á klukku, bæði á skífuklukku og tölvuúr, einkum þó ætlað þeim sem þurfa sérstaka þjálun í að þekkja á klukku. Hentar nemendum frá 6 ára aldri. 09456
LESTRARGLÍMUR
Höf.: Karl Thoroddsen, Ebbe Raun, Hjørdis Beier og Marianne Frederiksen Þýðing forrits: Hildigunnur Halldórsdóttir Þýðing handbókar: Guðlaug Guðmundsdóttir Lestrarglímur eru safn nokkurra verkefna sem ætlað er að þjálfa lestur og létta ritun. Lesvélin, tjaldið, völundarhús, raða orðum í setningar, ritun setninga og að raða rugluðum línum í rétta röð er meðal verkefnanna. Textar sem fylgja forritinu henta einkum börnum á aldrinum 8­12 ára. Með lítilli fyrirhöfn má bæta við nýjum textum eftir þörfum þannig að glímurnar geta nýst öllum aldurshópum. 9368
Lestu og skrifaðu
Jens Tollefsen Þýðing forrits og handbókar: Dóra Pálsdóttir. Forritið er hjálpartæki í lestrarkennslu og sérkennslu. Lestrarþjálfun: Nemendur fá myndir, orð og heilar setningar á skjáinn og þurfa að lesa til að tengja við myndirnar. Skriftarþjálfun: Nemandinn skrifar orð og setningar með eða án forskriftar. Hljóðgreining: Nemandi finnur bókstafina sem vantar með því að segja orðið eða setninguna. Ritun eigin texta: Nemandinn skrifar eigin texta og lýsir myndinni sem er á skjánum. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS (3.1 eða yngra), EGA eða VGA litaskjár og amk. 512 Kb minni (Ram) 09411
LEVELS
Niels Hovmöller og Jens Hovmöller. Þýðing forrits og handbókar: Jón O. Edwald og Birgir Edvald. Levels er auðvelt í notkun fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna, enda hentar það öllum sem eru að læra ensku. Verkefnin eru af sex þyngdarstigum. Byggt er á eyðufyllingarverkefnum þar sem setja skal inn viðeigandi orð og orðasambönd. Yfir 4000 verkefni af ýmsum þyngdarstigum, með um 5000 enskum orðum koma fyrir í forritinu. Notandinn keppir við sjálfan sig og fær strax að vita hvort hann svarar rétt. Handbókin er 8 bls. Útg. 1994 Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS Æskilegur vélbúnaður: Harður diskur og litaskjár 094210
MARGFÖLDUN
Höf.: Birgir Edwald Kerfi: DOS Litaskjár eða svart-hvítur skjár Forrit til þjálfunar í margföldun. Hægt er að velja um hvort margföldunardæmin eru uppsett eða hvort um er að ræða hugareikning. Einnig má stilla þann tíma sem forritið bíður svars, sé forritið stillt á hugareikning. Gefinn er kostur á að hámarka fyrri tölu. 092900
MARTEINN MÚS
Höf.: Leila Hanhimäki, Leena Kolho, Tiina Loukes og Pekka Norlamo Kerfi: DOS Litaskjár og mús Forritið er ætlað sem æfing í móðurmálskennslu. Forritið þjálfar stafrófsröðun samheiti, andheiti og samsett orð. 091680
MATARLYST
Höfundar: Starfsmenn AIVO Þýðing forrits og handbókar: Valgerður Hildibrandsdóttir Kerfi: DOS Kennsluforrit sem hentar nemendum í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum. Forritið hjálpar notendum að auka þekkingu þína í næringarfræði, auk þess sem það veitir þjálfun í tölvunotkun. Forritið er hægt að nota í margs konar samhengi og á marga vegu og kennsluaðferðirnar verður að laga að því. Í gagnagrunni eru notaðar upplýsingar úr íslenskum næringarefnatöflum og sænskum næringarefnatöflum fyrir þær vörur þar sem íslenskar upplýsingar liggja ekki fyrir um. 09325
MATTHILDUR
Maja Galaasen, Berit Bråthen og Knut Eikenes. Kerfi: DOS með EGA-skjá. Forritinu má stjórna með rofum. Námsgrein: Sérkennsla. Hentar fyrir byrjendakennslu. Kennsluforrit fyrir börn með skertan málþroska. Það þjálfar notkun grunnhugtaka, s.s. stór/lítill - breiður/mjór o. fl. Hentar einnig vel til að styrkja máltilfinningu nemenda í 1. bekk. Möguleiki er á rofastýringu fyrir hreyfihamlaða nemendur. Fyrir PC-tölvur. 5 1/4" disklingar 09222 3 1/2" disklingar 092220 Útg. 1991
MEISTARAMÚSIN
Höf.: Panu Korhonen Kerfi: DOS Litaskjár og mús Meistaramúsin er verkfæris- og þjálfunarforrit í stærðfræði fyrir nemendur í yngstu bekkjum grunnskóla. 093530
MINNISLEIKUR
Gävle Data Pedagogiska Centrum Þýðing forrits og handbókar: Hildigunnur Halldórsdóttir. Hentar nemendum frá 5 ára aldri. Leikurinn er fólginn í því að para saman, t.d. orð, liti eða reikningsdæmi. Orðin gætu verið rímorð, samheiti, andheiti, þýðingar úr erlendu tungumáli o.fl. Notuð eru 24 spil, þ.e.a.s. 12 pör af spilum. Hægt er að stjórna því hvað stendur á spilunum og búa til það sem hverjum sýnist. Handbókin er 8 bls. Útg. 1994 Tæknilegar kröfur: PC-tölva, Windows 3.0 eða nýrra, mús 094280
MYNDASAGA
Viggo Sadolin Kerfi: IBM-PC, VGA-, EGA-, EGA64-, eða MCGA skjákort. Litaskjár. 640Kb. Námsgrein: Móðurmál. Hentar einkum 10 ára og eldri. Með þessu forriti er hægt að teikna myndir, semja stuttan texta við og búa til myndabók. Fyrir PC-tölvur. 5 1/4" disklingur 09190 3 1/2" disklingur 091900 Útg. 1990
Myndir-123
Höfundur: Bent Thomsen Þýðandi forrits: Birgir Edwald Teikniforrit fyrir börn á leikskólaaldri og nemendur í grunnskóla sem af einhverjum ástæðum ráða ekki við venjuleg teikniforrit. Laga má forritið að getu hvers nemanda með þremur mismunandi þyngdarstigum: Myndir-1 er mjög einfalt í notkun og hefur fáa valkosti. Á þessu fyrsta þyngdarstigi er hægt að draga línur, þurrka út, hella lit í svæði og prenta mynd. Myndir-2 hefur fleiri valkosti. Hægt er að velja alla möguleika í sjálfri aðalvalmyndinni og meginkostir venjulegs teikniforrits eru tiltækir á þessu þyngdarstigi. Myndir-3 hefur marga möguleika fram yfir það sem hægt er að vinna í venjulegu teikniforriti. Í þessum þyngsta hluta forritsins er hægt að teikna fjölbreytilegar myndir með ýmiss konar hjálpartækjum, blanda litum og tengja myndir, eða hluta þeirra, saman á ýmsa vegu. Tæknilegar kröfur: PC-tölvur, EGA- eða VGA-skjár,BM Proprinter og HP Laserjet eða samsvarandi prentari , mús, hægt er að nota GENIUS GS-4500 handskanna með forritinu
MYNDIR OG ORÐ
Höfundur: Eli Qvenild Þýðing forrits og handbókar: Hanna Kristín Stefánsdóttir Forritið er einkum ætlað þeim sem á einhvern hátt eiga í erfiðleikum með íslenskt mál og þurfa sérstaka málþjálfun. Markmiðið er að þjálfa málnotkun sem byggist á stökum orðum. Þjálfunin snertir eftirtalin svið: ­finna heiti hluta (nefna hlut ) ­skrifa eftir forskrift ­skrifa án forskriftar ­skilja hugtök (tengja orð við hugtak) ­skilja talað mál (tengja talað orð við mynd) ­lesa (tengja texta við mynd) Tæknilegar kröfur: DOS -stýrikerfi, 640 Kb innra minni eða meira, 20 Mb harðan disk (forritið þarf 6 Mb) - hljóðkort
Myndrún
Höfundar: Kolbrún Hjaltadóttir og Sigrún Jóhannsdóttir Myndasöguforrit sem leyfir notandanum að búa til sínar eigin sögur. Hægt er að velja um tvö verkefni sem nefnast Myndraðir og Myndhlutar. Í Myndröðum eru 40 myndraðir með mismunandi viðfangsefnum. Notandinn getur skrifað texta inn á þær í textablöðrur eða inn á textasvæði. Í Myndhlutum eru stakar myndir sem hægt er að raða á mismunandi bakgrunn. Þar getur notandi búið til eigin myndraðir og skrifað texta. Meginmarkmið með forritinu er að þjálfa notandann í móðurmálinu, auka orðaforða, efla málskilning og málþroska. Forritið er ætlað til kennslu í grunnskóla, bæði í almennri kennslu og sérkennslu en getur einnig hentað yngri og eldri notendum. Hreyfihamlaðir, sem ekki geta notað lyklaborð tölvu, geta með sérstökum hugbúnaði sem birtir lyklaborð tölvu á skjá, unnið í Myndrúnu með rofum eða stýripinna. Hægt er að prenta annaðhvort eina mynd eða myndröð (fjórar myndir). Myndrún býður upp á tengingu við önnur Windows-forrit, t.d. teikniforrið Paintbrush³. Þannig getur notandinn teiknað sjálfur eða bætt inn á myndirnar. Hægt er að velja útprentun í lit eða svarthvítu. Tæknilegar kröfur: PC-tölvur með Windows 3.1 eða nýrra, 10 Mb á hörðum diski, VGA-skjár eða nýrri
ORÐAMYNDIR
Höf.: GPC í Svíþjóð Þýðing forrits og handbókar: Hildigunnur Halldórsdóttir Orðamyndir er kennsluforrit sem gæti verið leið til að skilja samhengið milli hljóða/bókstafa/orða. Allir sem vilja læra að lesa geta notað forritið. Þeir tengja saman mynd af hlut og mynd af orði. Síðan geta þeir með því að skipta um þrep, fundið bókstaf sem vantar í orðið og lært að skrifa orðið. Forritið býður upp á ýmsa skapandi þætti þar sem nemandinn og kennarinn geta búið til eigin orðalista með eigin myndum. Nemandinn getur einnig lesið orðin inn. Krafan um að kennslan sé löguð að hverjum einstaklingi er uppfyllt því að hægt er að búa til orðalista sem hentar hverjum nemanda og hann getur fengið viðfangsefni á fimm misþungum þrepum. Orðamyndir er gagnleg viðbót við önnur kennslugögn í lestri. Tæknilegar kröfur: ­ PC-tölva með Windows 3.1 eða nýrra ­ rúmlega 8 Mb af diskrými ­ mús 09427
PRÓSENTUR
Hannu Korhonen, Jyrki Leijala og Erkki Luoma-aho Kerfi: DOS. Námsgrein: Stærðfræði. Forrit og handbók. Hentar einkum 7. bekk (12 ára)­frhsk. Þjálfar öll helstu atriði prósentureiknings með sýnidæmum, verkefnum og leikjum. Hægt er að búa til eigin dæmi. Handbókina er einnig hægt að fá sérstaklega. Samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Námsgagnastofnunar og Reiknistofnunar Háskóla Íslands. PRÓSENTUR ­ KENNSLUFORRIT 5 1/4² disklingur. Gert fyrir PC-vélar. Útg. 1989. 09281 PRÓSENTUR­ KENNSLUFORRIT 3 1/2² disklingur. Gert fyrir PC-vélar. Útg. 1989. 092810 PRÓSENTUR­ HANDBÓK 9 bls. Útg. 1989. 092811
PÚSLUSPIL
NIiels Asger og Morten M. Christiansen Þýðing forrits og handbókar: Námsgagnastofnun Hentar nemendum á öllum aldri. Púsluspil er alkunn dægradvöl. Hér gefst kostur á að púsla á tölvu og nota til þess mús eða sérbúna rofa. Alli bitarnir í púsluspilinu eru sýnilegir á skjánum, aðeins þarf að flytja þá til. Hægt er að ákveða fjölda bitanna allt frá 4 upp í 256. Auðvelt er að sækja sér myndir úr öðrum forritum í tölvunni ef þær eru á sniðinu .bmp, .pcx eða eru Windows- metaskrár. Útg. 1995 Tæknilegar kröfur: PC-tölva, Windows 3.01eða nýrra, mús 094450
RAKSTRAUMSRÁSIR
Höfundur: Örjan Broman. Kerfi: PC, MS-DOS Skjár: EGA Einnig þarf mús og a.m.k. 400 Kb laust minni. Námsgrein: Eðlisfræði. Hentar efri bekkjum grunnskóla og eðlis- og náttúrufræðideildum í framhaldsskólum. Í forritinu er líkt eftir tilraunum á tengibretti. Nemendur læra að þekkja íhluti rásar í sjón, "þreifa" á þeim, tengja þá saman í virka rás og mæla straum og spennu. Markmiðið með forritinu er að ­ þjálfa nemendur í að lesa texta og teikna tengimyndir af rásum ­ leggja dæmi fyrir nemendur þar sem þeir geta prófað svör sín með því að setja saman viðeigandi rás á skjánum ­ gefa nemendum kost á að búa til rásir og mæla straum og spennu í þeim. Nemendur geta síðan skráð kunnáttu sína. Fyrir PC-tölvur og 3 1/2" og 5 1/4" disklinga. 093960
RÁÐGÁTUR I
Höfundar: Davíð Oddson, Yngvi Sigurjónsson, Karl Thoroddsen, Sigfús Magnússon og Hildigunnur Halldórsdóttir. Kerfi: Microsoft Windows 3.0 Mús. Námsgrein: Stærðfræði. Hentar 11 ára og eldri. Fingralangur Markmið forritsins er að kenna nemendum um þætti talna og prímtölur svo og að gera áætlanir um lausnarleiðir og gera þeim grein fyrir hvers vegna sumar eru nothæfar en aðrar ekki. Getgátur Markmið forritsins er að æfa röðun heilla talna og kenna gildi aukastafa í tugabrotum. Margföldunarmynstur Markmiðið með forritinu er að rannsaka mynstur sem fram koma þegar tölum er raðað í röð eftir línum og dálkum. Þetta eru verkefni sem kennarar hafa gjarnan látið nemendur vinna á blaði. Fyrir PC- tölvur og 3 1/2" diskiling Útg. 1993 09364
RÁÐGÁTUR II
Höfunduar: Davíð Oddson, Yngvi Sigurjónsson, Friðrik ásmundsson, Garpur Dagsson, Jóhann Hilmarsson og Hildigunnur Halldórsdóttir. Kerfi: Microsoft Windows 3.0 Mús. Námsgrein: Þrautalausnir Hentar fyrir 11 ára og eldri. Froskar Markmiðið er að skipta á rauðu og bláu froskunum þannig að allir rauðu froskarnir færist hægra megin á skjáinn og þeir bláu vinstra megin og að það sé gert í sem fæstum skrefum. Forritið þjálfar þrautalausnir. Hver er reglan? Markmiðið með forritinu er að æfa nemendur í að setja fram tilgátu og prófa hana, ennfremur að þjálfa nemendur í þrautalausnum og stærðfræði. Fyrir PC- tölvur og 3 1/2" diskling. Útg. 1993 09363
REIKNIHELLIRINN
Höf.: GPC í Svíþjóð Kerfi: DOS Litaskjár og mús Þjálfar helstu grunnaðgerðir stærðfræðinnar. Forritinu fylgir dæmasmiðja þannig að hægt er að búa til ný verkefni. 093140
RIGNING Í ÓSLÓ
Höf.: Hildigunnur Halldórsdóttir Forritið er vinnubók með léttlestrarbókinni Rigning í Ósló. Nemendur vinna bókina í tölvu, geta prentað út einstakar síður og fá oftast að vita strax hvort þeir svara verkefnunum rétt eða ekki. 09465
SATT?
Höf.: Ivar Minken og Børre Stenseth Kerfi: Ms. Windows Með þessu forriti má búa til leiki til að þjálfa stærðfræðikunnáttu. Nokkur dæmi fylgja á disknum svo forritið er strax tilbúið til notkunar. Bakhlið nokkurra spila kemur á skjáinn. Nemandinn leggur peninga undir og snýr spilunum við; þá kemur dæmið í ljós. Nemandinn fær tiltekinn frest til að reikna dæmið og getur unnið hærri upphæð en hann lagði undir. Vegna sveigjanleika forritisins er hægt að nota það í mörgum greinum stærðfræðinnar. Leikumhverfi SATT býður upp á spennu og svörun á meðan stærðfræðidæmi eru leyst. 092640
SKRIFTÍS
Þórir Sigurðsson Skriftís er skrifletur sem ætlað er til nota við skriftarkennslu í grunnskólum. Það auðveldar kennurum að útbúa þjálfunaræfingar í skrift fyrir nemendur. Forritið býður upp á fjögur stig skriftar: grunnskrift án króka, grunnskrift með tengikrókum, tengda skrift og skrift með breiðpenna. Skrifstafina er hægt að hafa af þeirri stærð sem óskað er. Hægt er að búa til hjálparlínur aftan eða framan við stafi. Útg. 1995 Tæknilegar kröfur: Windows (einnig til fyrir Macintosh) 094170 (PC) 09464 (MAC)
Slönguspil
Höf.: Birgir Edwald Teningaspil þar sem tveir leikmenn keppast um að komast á leiðarenda eftir talnalínu frá 1-100. Leikmennirnir geta verið óheppnir ef þeir lenda í slöngugini eða heppnir fái þeir tækifæri til að klifra upp stiga en þá þarf að leysa reikningsdæmi. Hægt er að spila spilið án reikningsdæma eins og venjulegt slönguspil. Forritinu er ætlað að þjálfa nemendur á aldrinum 8-15 ára í reikniaðgerðunum fjórum, samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu. Hægt er að velja um hvaða reikniaðgerðir eru teknar fyrir og dæmi af þremur þyngdarstigum. Tæknilegar kröfur: PC-tölvur, Windows 3.1 eða nýrra, 1 Mb af diskrými, Forritið styður ekki Large Font³ skjástýringu
STJÖRNUMERKIN / STJÖRNUHIMINNINN
Höf.: Markku Poutanen og Hannu Karttunen Kerfi: DOS Litaskjár Forritið Stjörnumerkin er myndrænn gagnabanki með upplýsingum og útskýringum um stjörnufræði. Hægt er að skoða stjörnuhimininn frá ýmsum stöðum, lengdar- og breiddargráðum og á ýmsum tímum. Einnig má fá upplýsingar um stjörnumerkin og einstakar stjörnur (nafn, birtustig, stöðu o.fl.) 093510
Sögusmiðjan
Höf.: Hildigunnur Halldórsdóttir Ritvinnsluforrit með ýmsum aðgerðum sem ætlað er að veita nemendum innblástur og örva þá til ritunar. Það fellur að markmiðum ferlisritunar og er ætlað nemendum frá 8 ára aldri. Einnig hentar það til kennslu nýbúa. Byggt er á því að nemendum er gefinn kostur á að skoða myndir sem tengjast því ritefni sem þeir hafa valið sér. Ritill forritsins er mjög einfaldur og einu ritvinnsluaðgerðirnar eru klippa, afrita og líma. Ef nemandi hefur náð tökum á ritvinnslu í öðrum forritum getur hann tekið sögu sína inn í hvaða Windows-ritvinnsluforrit sem er. Forritinu er ætlað að: ­ gera ritun að leik ­ kenna nemendum að setja fram hugsanir sínar og hugmyndir í rituðu máli ­ gera nemendur gagnrýna á það sem þeir skrifa ­ auðvelda þeim að laga og breyta því sem þeir hafa skrifað. Tæknilegar kröfur: PC-tölvur með Windows 3.1 eða nýrra, rúmlega 3 Mb af diskrými, mús og prentari
TRÚ VON OG KÆRLEIKUR ­ VERKEFNI Á TÖLVU ­ (fyrir Túlk)
Höfundur: Hildigunnur Þórsdóttir. Kerfi: Windows. Verkefnin eru unni í Túlki. Þau eru fullgerð til notkunar og eru eins konar viðbót við vinnubókarverkefnin. Handbók fylgir, 16 bls. Útg. 1993 09352
TÚLKUR
Höf.: Ivar Minken og Børre Stenseth Kerfi: MS Windows Forritinu er ætlað að vera rammi sem kennarar og nemendur geti notað til að búa til þau verkefni sem spilið leggur fyrir notandann. Leikumhverfi Túlks býður upp á spennu og svörun á meðan verkefnin eru leyst. Forritinu fylgja nokkrir verkefnaflokkar en hugmyndin er samt sem áður að notkun forritsins sé löguð að kennslu og notendum á hverjum stað. 093240
TÖFRAFERNINGURINN
Höfundur: Birgir Edwald Hentar 10 til 15 ára nemendum.Töfraferningnum er ætlað að þjálfa nemendur í hugareikningi. Á skjánum er leikborð 3x3 eða 4x4 reitir. Nemandanum er ætlað að fylla í reitina svo summan lárétt, lóðrétt og á ská verði alltaf hin sama. Hægt er að velja milli 8 þyngdarstiga. Nemendur fá tvennskonar umbun. Fleiri stig fyrir að halda áfram á sama þyngdarstigi en einnig eru þeir hvattir til að takast á við þyngri verkefni með verðlaunabikurum. Handbókin er 12 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, Windows 3.1 094230
TÖLUR OG SAMLAGNING
Höfundur: Alan Robinson og Maralyn McBratney. Þýðing forrits: Birgir Edwald. Þýðing handbókar: Jón O. Edwald. Hentar jafnvel frá þriggja ára aldri. Forritið er byggt upp á fimm einföldum leikjum með skrautlegum teiknimyndum, hljóði, tali og tónum. Auðvelt er að laga forritið að getu einstakra nemenda. Börnin læra að telja og síðan að leggja saman og er þetta því kjörið hjálpartæki bæði fyrir heimili og skóla. Hægt er að prenta árangurinn og fylgjast þannig með framförum. Handbókin er 19 bls. Útg. 1994. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS, harður diskur með 700 Kb laus, EGA- eða VGA-skjár Æskileg jaðartæki: hljóðkort, prentari 094150
TÖLVUFLÓRA
Höfundur: Geir Arne Drolsum o. fl. Kerfi: IBM-PC, CGA-skjákort. Námsgrein: Líffræði. Hentar einkum 6.-10. bekk. Hjálparatæki til greiningar á blómplöntum eftir einföldum og sýnilegum einkennum. Fyrir PC-tölvur og 3 1/2" -092770- og 5 1/4" -09277- disklinga. Útg. 1989.
UMSAGNIR
Kerfi: DOS Skjár: CGA, EGA, VGA eða Hercules. Auðveldast er að stýra forritinu með mús, en þó er hægt að nota það án hennar. Kennsluforritið Umsagnir er n.k. gagnasafn fyrir ritdóma. Það er þannig byggt upp að nemendur kynnast notkun gagnagrunna jafnframt því að semja umsagnir um bækur. Forritið er hugsað fyrir nemendur á miðstigi og unnt er að nota það frá 5. bekk. 09355
VASA-SKIPIÐ
Höfundar: Curt Borgenstam, Peter Jäderlund, Göran Nydahl og Magnus Olofsson. Þýðing forrits : Halldór Halldórsson, Þorvaldur Ólafsson og Hildigunnur Halldórsdóttir. Forritið hentar einkum nemendum í efri bekkjum grunnskóla og nemendum í framhaldsskóla. Árið 1628 lauk smíði Vasaskipsins og það hélt í jómfrúarferð sína ... Þrem öldum síðar fannst skipið og því var bjargað af hafsbotni 1961. En hvers vegna sökk Vasa? Sé reynt að sigla skipinu fæst svar við því. Hægt er að breyta lagi og hleðslu skipsins svo að því megi sigla um úfinn sjó. Engin handbók fylgir. Útg. 1994 Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS, EGA- eða VGA-skjár, harður diskur með a.m.k. 1 Mb laus, mús 093580
VERKSMIÐJAN
Höf.: Margo Cappo og Mike Fish Kerfi: DOS Litaskjár Forritið er hannað til að þjálfa færni í að leysa þrautir. Í forritinu er lögð áhersla á nokkrar lausnaleiðir: að rekja ferli afturábak, að greina ferli, að ákveða röð aðgerða og að nota sköpunargáfuna. Í fyrsta hluta forritsins prófa nemendur sig áfram með því að nota þrjár tegundir véla. Sköpunargáfa nemenda fær að njóta sín í öðrum hluta forritsins þar sem þeir geta hannað vörur, reynt að framleiða þær með því að láta vélartegundirnar þrjár vinna saman og fengið aðra nemendur til að spreyta sig á framleiðslunni. Í þriðja hlutanum eiga nemendur að skoða fullbúna vöru og rekja síðan framleiðsluferlið afturábak. 091810
VERÖLDIN MÍN
Höf.: Turid Utgård Forritið er tæki³ til að kenna börnum að skilja og nota orð og hugtök og til að þjálfa lestur og skrift. Það er ætlað börnum í 1. og 2. bekk, eða í sérkennslu. Það hentar einnig forskólabörnum sem stunda leiklestur³ og börnum sem læra íslensku sem annað tungumál. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS (3.0 eða yngra), EGA litaskjár og amk. 640 Kb minni (Ram). Harður diskur 3 Mb- hljóðkort. 09359
VOGARSTÖNGIN
Örjan Broman o. fl. Kerfi: Microsoft Windows 3.0. Mús. Námsgrein: Eðlisfræði. Hentar fyrir 10 ára og eldri. Vogarstöngin er forrit sem getur komið að góðum notum við að auka skilning nemenda á jafnvægi, þjálfa þá í að meta þyngd hluta og ákveða þyngdareiningar hluta, allt frá mjög léttum til mjög þungra hluta. Frá Vogarstönginni hefur notandinn beinan aðgang að ritli og reiknivél en það gefur m.a. færi á að skila skriflegum niðurstöðum úr verkefnunum sem sett eru upp í forritinu. Auk þess geta kennarar útbúið æfingar og sett inn í forritið. Forritið er ætlað sem aukaverkefni í raungreinum á miðju grunnskólastigi og þar fyrir ofan. Útg. 1993 094140
VÖRUBÍLLINN
Höfundur: Eirin Brænde o.fl. Hentar einkum nemendum frá sex ára aldri sem eiga við námsörðugleika að etja af ýmsum orsökum. Reynt er m.a. að koma til móts við börn sem eru seinþroska í fínhreyfingum og samhæfingu hreyfinga, hafa skert rúm- og áttaskyn og skortir skilning. Handbókin er 46 bls. Útg. 1993. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS, EGA- eða VGA-skjár 093670
ÞJÁLFI
Höf.: Jyrki Degermann, Jaakko Rantanen. Kerfi: DOS Litaskjár eða svart-hvítur skjár Forritið er ætlað til þjálfunar á lyklaborð. Það skiptist í 16 mismunandi áfanga. Fyrsti áfanginn er auðveldastur og hinn síðasti erfiðastur. Því er eðlilegast að hefja námið í fyrsta áfanga og fikra sig síðan áfram frá einum áfanga til annars. Hver áfangi er í þremur mismunandi hlutum sem gert er ráð fyrir að lokið sé við áður en haldið er í næsta áfanga. Að loknum hverjum hluta gefur forritið einkunn. 091902
ÞREKÞJÁLFUN Í MARGFÖLDUN
Höf.: Esko Vörgren og Markku Heinonen Kerfi: DOS Litaskjár og mús Markmiðið með notkun forritsins er að skýra hugtakið margföldun, kenna margföldunartöfluna og auka hraða og öryggi í margföldun. 093050
ÞRÍR Í RÖÐ
Höfundur: Hildigunnur Halldórsdóttir. Kerfi: Microsoft Windows 3.1 Mús. Námsgrein: Stærðfræði. Hentar 8 ára og eldri. Þrír í röð flokkast undir þá gerð kennsluforrita sem kallast þjálfunarforrit. Með notkun þess þjálfast nemendur í margföldunartöflunni en margir hafa liðið fyrir það á efri stigum skólagöngunnar að hafa ekki náð leikni í margföldunartöflunni. Forritið er því ætlað nemendum yngri bekkja grunnskólans (8­10 ára). Þessu forriti er ætlað að vekja áhuga nemenda á spilum og þjálfa þá um leið í margföldun. Þar sem markhópurinn er fyrst og fremst seinfærir nemendur, er leitast við að gera forritið þannig úr garði að hvatningin sé fólgin í innbyrðis keppni tveggja nemenda. Gott er að nemendur séu á svipuðu stigi í reiknifærni en það er þó ekki skilyrði þar sem ekki er keppt við tímann. Hægt er að velja um fjögur mismunandi þrep í leiknum og taka þau mið af kennsluefni því sem kennt er í neðstu bekkjum grunnskólans. Fyrir PC-tölvu og 3 1/2" disklinga. Útg. 1993 09398
ÞRÍVÍDDARHÚSIÐ
Marit Ala-Votila o.fl. Þýðing forrits og handbókar: Hildigunnur Halldórsdóttir Hentar 10 ára nemendum og eldri. Ætlað til að þjálfa þrívíddarvitund á tvívíddarfleti. Hentar einnig í stærðfræði í efri bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum. Handbókin er 12 bls. Útg. 1993. Tæknilegar kröfur: PC-tölva, MS-DOS, Ega-skjár og mús, 400 Kb laust minni. 093710